Sérlausnir fyrir verkstæði
Verkbókhald og stimpilklukka
Verkbókhald og stimpilklukka hentar vel fyrir þjónustufyrirtæki sem nota verkbókhald, stimpilklukku og dk Plús vefþjónustu til að einfalda utanumhald um unnin verk og reikningagerð.
Verkstimpilklukkan hentar líka þeim fyrirtækjum sem nota launakerfi dk og eru þá hægt að flytja unnar vinnustundir beint yfir í launakerfið í lok mánaðar.
Hér fyrir neðan er nánari lýsing á virkni kerfisins.

Verkbeiðni skráð í móttöku
Í móttöku er stofnuð er verkbeiðni og sett inn verklýsing í verkbókhaldskerfi.
Hægt er að fá tengingu við ökustækjaskrá sem flýtir fyrir skráningu.
Verkbeiðni er prentuð út þar sem allar upplýsingar koma fram um verkið og einnig prentast út strikamerki sem hægt er að nota við innskráningu starfsmanna á verkið.


Starfsmaður byrjar á verki
Starfsmaður byrjar á að skanna strikmerki starfsmanns í verkstimpilklukku og strax á eftir strikamerki verkbeiðnar.
Starfsmaður er svo sjálfkrafa skráður út af viðkomandi verki þegar hann skráir sig inn á næsta verk.
Kerfið er hraðvirkt og mjög einfalt í notkun.
Kostnaðarskráning
Allur kostnaður og varahlutir er skráð um leið á verkið í verkbókhaldskerfinu.
Þannig er komið í veg fyrir ranga skráningu eða að eitthvað gleymist við verkið.
Allar upplýsingar eru réttar við útskrift reiknings í sölureikningakerfi dk.


Útskrift reiknings
Um leið og starfsmaður skráir sig út af verki, uppfærast allar færslur sjálfkrafa í verkbókhaldskerfi.
Við afhendingu er uppfært verk flutt yfir á sölureikning. Hægt er að fá beintengingu við greiðsluposa.
Hröð og örugg sölureikningsútskrift þar sem allar færslur skila sér sjálfkrafa á rétta staði.
Tenging við launakerfi
Verkstimpilklukka og launakerfi dk vinna fullkomlega saman.
Mikill hagræðing næst fram með því að nota verkbókhald, stimpilklukku, vefþjónustur og launakerfi dk saman.
Upplýsingar frá stimpilklukku er hægt að nota við launaútreikning.


Aðrar lausnir
Einnig er í boði Bókunarkerfi fyrir þjónustufyrirtæki sem nota verkbókhaldskerfi.
Heildarlausn fyrir þjónustufyrirtæki allt frá því að tími er bókaður þar til reikningur er skrifaður út.