Beint í efni
dk lausnir

dk QR pöntunarkerfi

dk QR pöntunarkerfi gerir gestum veitingastaða og hótela kleift að skanna QR kóða við borðið, velja úr matseðlinum í símanum sínum og greiða — allt án þess að bíða eftir þjónustu. Pöntunin fer beint í eldhúsið og bókast í kassakerfinu sjálfkrafa.

Kerfið er hluti af samþættu kassakerfi dk: dk POS kassakerfi, dk POS App og QR pöntun vinna saman sem ein heild — einn matseðill, ein birgðastaða og ein yfirsýn fyrir eigendur og rekstarstjóra .

POS lausnir

dk QR pöntunarkerfi

dk POS kassakerfið eru miðlægur gagnagrunnur veitingastaðarins fyrir rekstarstjóra og eigendur til að halda utan um pantanir, sölur og dagsuppgjör. dk QR pöntunarkerfið er viðbót við kassakerfið. dk QR pöntunarkerfið tengist kassakerfinu svo uppgjör og skýrslur eru í rauntíma. Einföld og þægileg stýring á vörum í gegnum birgðakerfi dk.

Þannig verður dk QR pöntunarkerfið einföld og þægileg viðbót við kassakerfi veitingastaða sem einfaldar rekstraraðilum vinnuna og sparar tíma þjóna.

Verðið á kerfinu er fyrirsjáanlegt, eitt mánaðargjald og ótakmarkaðir QR kóðar.

Hvað er dk QR pöntunarkerfi?

dk QR kóða pöntunarkerfi gerir viðskiptavinum kleift að skanna QR kóða á borðinu, opna matseðilinn í símanum, panta og greiða — án þess að þurfa að bíða eftir þjóni. Þegar pöntun er staðfest og greidd prentast hún sjálfkrafa á eldhúsprentara og reikningurinn bókast beint í dk bókhaldskerfið.

Lausnin hentar jafnt fyrir veitingastaði, kaffihús, hótel, bari og alla þá sem vilja gefa viðskiptavinum aukin sveigjanleika. QR kóðar eru tengdir við borðaskipulag veitingastaðar og auðveld uppsetning tryggir að kerfið sé komið í notkun á skömmum tima.

Gestir þurfa ekkert að hlaða niður forriti — matseðillinn í símanum opnast beint í vafra þegar kóðinn er skannaður.

Reynslan frá Friðheimum

Friðheimar nota dk QR pöntunarkerfi

Friðheimar, vinsæll ferðamannastaður í Reykholti, Bláskógabyggð tók upp dk QR pöntunarkerfið í sumar. Gestir geta nú skannað QR kóða við borðið í Vínstofunni og pantað beint af matseðlinum í vafra í símanum. Greiðsla fer í gegnum Straum greiðslumiðlun — þægilega og örugglega.

Með dk QR pantanakerfin næst styttri biðtími, færri villur og ánægðari gestir — og þjónar geta einbeitt sér að þjónustunni í stað þess að taka við pöntunum handvirkt.

Helstu kostir QR pöntunarkerfis

Gestirnir panta sjálfir í símanum — þjónar þurfa ekki að taka við pöntunum handvirkt. Þetta gefur starfsfólki meira svigrúm til að veita enn betri þjónustu.

Gestirnir velja sjálfir af matseðlinum — engin handvirk skráning. Pöntunin fer beint í eldhúsið eins og var valin.

Kerfið keyrir í skýinu, sem þýðir að ekki þarf að huga að viðhaldi á staðnum eftir uppsetningu. Sjálfvirkar uppfærslur tryggja að matseðillinn sé alltaf réttur og uppfærður.

Með dk kassakerfinu fer sala úr QR kerfinu sjálfkrafa í bókhaldið og verður hluti af dagsuppgjörinu. Engin handskráning, engar tvöfaldar færslur.

Gestirnir skoða matseðilinn beint í vafra í símanum — ekkert app niðurhal. Matseðillinn er alltaf uppfærður og hægt er að bæta við myndum og lýsingum.

QR pöntun, dk POS og dk POS App vinna saman sem ein heild. Einn matseðill, ein birgðastaða og ein yfirsýn — hvort sem gesturinn pantar í kassanum, appinu eða í síma.

Heildarlausn

Eitt kerfi — margar leiðir til að panta

dk QR pöntunarkerfi er hluti af samþættu kassakerfi frá dk hugbúnaði. Allir þættir vinna saman sem ein heild:

  • dk POS kassakerfi — afgreiðsla í kassanum, fullt yfirlit yfir allar pantanir og sölu.
  • dk POS App — þjónar geta tekið við og breytt pöntunum beint í spjaldtölvu eða síma á gólfinu.
  • QR pöntun — gestir panta sjálfir af matseðlinum í eigin síma við borðið.
  • dk bókhaldskerfi — Öll sala bókast í dk bókhaldskerfinu sem sparar mikinn tíma.

Allar pantanir — hvort sem þær koma frá kassanum, appinu eða QR kóðanum — fara í sama eldhúsprentarann og bókast í sama bókhaldskerfi. Engar tvítekningar, engar villur milli kerfa.

Spurt og svarað

Þurfa gestir að hlaða niður appi til að nota QR pöntunina?
Hvaða greiðslumátar eru í boði?
Er QR pöntunin tengd dk POS kassakerfinu?
Er hægt að nota kerfið án dk POS kassakerfis?
Hvernig er matseðillinn uppfærður?
Hentar kerfið fyrir hótel og ferðaþjónustuaðila?
Hvernig virkar dk QR pöntunarkerfi?

Áhugi á QR pöntunarkerfi?

Hafðu samband við okkur og við hjálpum þér að koma upp QR pöntunarkerfi fyrir þinn stað. Við finnum lausn sem passar — hvort sem þú ert með veitingastað, gistiheimili eða hótel.