Beint í efni

10.09.2026

Tengivandamál vegna Microsoft uppfærslu í hýsingarumhverfi dk

Í morgun komu upp tengivandamál í hýsingarumhverfi dk. Orsökin var breyting sem Microsoft gerði hjá sér í síðustu uppfærslum, en hún olli því að hluti notenda gat ekki tengst hýsingarumhverfi dk með eðlilegum hætti.

Um leið og kerfisstjórar okkar urðu varir við truflunina var farið í aðgerðir til að tryggja stöðugleika kerfanna. Orsökin fannst fljótt og var rakin til fyrrnefndrar uppfærslu Microsoft, sem olli því að hluti umhverfisins starfaði ekki sem skyldi.

Staðan núna: Flestir notendur ættu að geta tengst eðlilega á ný, en einhverjir eru enn að verða varir við vandamál.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa valdið og munum upplýsa ykkur um leið og öllum umhverfum hefur verið komið í eðlilegt horf.

Hægt er að fylgjast með stöðunni í rauntíma á status.dkvistun.is. Ef þið eruð enn að lenda í vandræðum er dk til taks á hjalp@dk.is.

Dagsetning
10.09.2026
Deila