Beint í efni

30.06.2025

Nýtt og öflugra gagnaver dk hjá Borealis



dk hugbúnaður flytur hýsingarumhverfi sitt í gagnaver Borealis á Korputorgi

dk gerði nýverið samning við Borealis Data Center um rekstur á nýrri aðalstaðsetningu gagnavers fyrirtækisins í Reykjavík. Flutningurinn markar nýjan kafla í hýsingarumhverfi dk og felur í sér stórtæka uppfærslu á innviðum og rekstrarumhverfi.

Á nýjum rekstrarstað verður innleiddur nýr vél- og netbúnaður sem mun tryggja viðskiptavinum áframhaldandi öryggi og góðan vinnsluhraða. Að lokinni uppsetningu nú í sumar mun hýsingar- og þróunarumhverfi fyrirtækisins færast yfir í nýja gagnaverið. Þessi breyting mun skila verulegri aukningu á net- og vinnsluhraða í innri kerfum.

dk hefur frá árinu 2012 verið með sitt aðalgagnaver í Síðumúla en sú staðsetning mun loka síðar á árinu. Varagagnaver dk í Ásbrú verður áfram nýtt til öryggisafritunar, en í aðeins uppfærðri mynd.

dk hefur frá árinu 2006 boðið upp á hýsingarþjónustu fyrir viðskiptavini sem hefur vaxið jafnt og þétt. Í dag er hýsingarþjónusta dk ein sú stærsta á landinu og hýsir gögn frá yfir 30 þúsund fyrirtækjum ásamt því að um 20 þúsund notendur hafa aðgengi að okkar kerfum.

Öll gögn sem dk hýsir eru staðsett innanlands í íslenskum gagnaverum og eru til í fjórriti, tvö eintök á hvorum stað, til að tryggja hámarksöryggi komi til óvænts atburðar.

“Það er virkilega spennandi að hefja nýjan kafla í okkar hýsingarrekstri með Borealis. Okkar núverandi þjónustuaðili hefur sinnt okkur gífurlega vel frá árinu 2012 og mun gera það áfram í varagagnaverinu okkar í Ásbrú.  

Í nýja gagnaverinu okkar hjá Borealis munum við stækka vinnslugetu okkar margfalt, meðal annars með margfalt hraðari net- og vélbúnaði sem mun tryggja okkar viðskiptavinum áfram bæði örugga og hraða vinnslu gagna í okkar kerfum. Öll gögn verða áfram hýst á Íslandi, örugg fyrir margskonar áföllum og óvæntum atvikum” segir Trausti Sigurbjörnsson, sviðsstjóri hýsingar hjá dk hugbúnaði.

Halldór Már Sæmundsson, CCO hjá Borealis, bætir við: “Í gagnaveri Borealis á Korputorgi í Reykjavík hýsum við nú þegar fjölbreytta og samfélagslega mikilvægi innviði og fögnum því að fá dk hugbúnað í hóp viðskiptavina okkar þar. Gagnaverið er hannað og vottað til að tryggja öryggi og áreiðanleika og hentar því sérstaklega vel fyrir kröfuharða starfsemi eins og hýsingar- og þróunarumhverfi dk. Við hlökkum til samstarfsins við dk og að styðja við framþróun í starfsemi þeirra og bætta þjónustu við viðskiptavini.”

Grein af vef Viðskiptablaðsins 30. júní 2025.
Sjá fréttina hér


Dagsetning
30.06.2025
Deila