Beint í efni

27.08.2024

Ný og spennandi námskeið hjá dk

Nú höfum við uppfært námskeiðasíðu dk með nýjum og spennandi námskeiðum. Við bjóðum upp á námskeið alla fimmtudagsmorgna kl. 9.00 – 10.00 og eru þau kennd í gegnum Teams.

Einnig höfum við skipulagt nokkur webinar, sem eru frí netnámskeið/kynningar, sem standa öllum okkar viðskiptavinum til boða. Þar tökum við fyrir mismunandi einingar og efni sem nýtist okkar viðskiptavinum.

Vinnustofurnar eru einnig með breyttu sniði hjá okkur núna og eru sérsniðnar að hverju fyrirtæki fyrir sig. Eins og fyrr vinnur fólk í sínum gögnum og er þetta tilvalið t.d. á starfsdögum. Hægt er að koma hingað til okkar á vinnustofur eða fá okkur á staðinn. Ef þið hafið frekari spurningar um eða viljið bóka vinnustofu hafið samband við Bryndísi Kolbrúnu Sigurðardóttur, stjórnanda viðskiptatengsla hjá dk, bryndis@dk.is.

Dagsetning
27.08.2024
Deila