Beint í efni

08.09.2025

Flutningur hýsingarumhverfis dk yfirstaðinn



Flutningi og uppsetningu hýsingar- og þróunarumhverfis dk í gagnaver Borealis Data Center á Korputorgi er nú lokið. Verkefnið gekk afar vel, fram úr væntingum og án teljandi truflana fyrir viðskiptavini. Hópur starfsfólk dk kom að undirbúningi og framkvæmd, en verkefnið hefur verið í skipulagningu í yfir eitt ár.

Flutningurinn markar nýjan kafla í hýsingarumhverfi dk og felur í sér stórtæka uppfærslu á innviðum og rekstrarumhverfi. Innleiddur var margfalt hraðari vél- og netbúnaður sem mun skila verulegri aukningu á net- og vinnsluhraða í kerfum ásamt því að tryggja áframhaldandi öryggi okkar viðskiptavina.

Seinni staðsetning dk í gagnaveri Verne Global á Ásbrú verður áfram, en í uppfærðri mynd.

Öll gögn sem dk hýsir eru staðsett innanlands í íslenskum gagnaverum og eru til í fjórriti, tvö eintök á hvorum stað, til að tryggja hámarksöryggi komi til óvænts atburðar.

Í dag er hýsingarþjónusta dk ein sú stærsta á landinu og hýsir gögn frá yfir 30 þúsund fyrirtækjum ásamt því að um 20 þúsund notendur hafa aðgengi að okkar kerfum.

Takk fyrir þolinmæðina í flutningunum og hlökkum til áframhaldandi samstarfs.

Dagsetning
08.09.2025
Deila