29.01.2026
Ertu búin/n að uppfæra frídagatöfluna?
Við viljum benda viðskiptavinum okkar á að nú þarf að uppfæra frídagatöflu í dk svo að lögbundnir íslenskir frídagar merkist sem slíkir.
Athugið að þau fyrirtæki sem eru á sameignarsvæði (Shared svæði) hafa nú þegar verið uppfærð.
Meðfylgjandi eru tvær leiðir til að uppfæra frídagatöfluna:
Leið 1 - Uppfærsla í gegnum Launakerfið:
Laun – Uppsetning – Rafrænir innheimtuaðilar – F5 valmynd – Uppfæra innheimtuaðila.

Leið 2 – Uppfærsla í gegnum Almennt:
Almennt – Almennar töflur – Frídagar – F5 valmynd – Lengja fríd.töflu um eitt ár (íslenskir frídagar)
