20.03.2026
dk uppfærsla
dk 5.2.0.268
dk var uppfært í vikunni og hér má sjá yfirlit yfir helstu breytingar og nýjungar sem fylgdu uppfærslunni.
Fjárhagur
- Að sækja bankahreyfingar og smíða dagbók þekkir núna innborganir frá Inkasso.
- Viðhengi fylgja GLTrans færslum með kortainnlestri.
Rafrænir reikningar
- Nýtt - Nú er hægt að bóka lotur og fyrningardaga frá rafrænum reikningum.
Lánardrottnar
- Nýtt - Greiðslan bókast sjálfkrafa ef rafrænn reikningur er greiddur:
- Stilling: Uppsetning > Almennar stillingar > Lánardrottnar > Greiðsla reikninga og haka þar í "Bóka greiðslu sjálfkrafa ef reikningur er full greiddur".
- Nýtt - Bókhaldslykill skilar sér í rafrænum reikningi sem kemur frá Síminn Pay og Kardio.
Starfsmenn
- Nýtt - Ef starfsmaður er ekki lengur samþykkjandi reikninga kemur spurning hvort viðkomandi vilji hreinsa þennan samþykkjanda af lánardrottnum og á sama tíma er hægt að velja nýjan samþykkjanda í staðinn.
Verk
- Nýtt - Nýr dálkur í uppflettingu verka - hægt að sjá sölupantananúmer.
- Nýtt - Komið stækkunargler á verkbeiðni úr uppflettingum verkhreyfinga.
Sölureikningar
- Hægt að breyta nafni á skrá fyrir sölureikninga og sölutilboð eins og hægt er að gera í sölupöntun.
- Nýtt - Komin er flýtileið til að senda sölupöntun í vöruhús í gegnum valmynd án þess að opna þurfi sölupöntunina.
- Nýtt - Búið að bæta við dálk, "Vinna með rafræn viðskiptakjöl", í lista yfir prentaða reikninga.
Almennt
- Vartöluprófun er hætt skv. kröfum frá Þjóðskrá.
Ef spurningar vakna hafið samband við ráðgjafadeild dk á hjalp@dk.is.