Beint í efni

11.09.2025

dk One uppfærsla


Komin er ný uppfærsla á dk One. Útgáfan kemur til með að skila hraðari reikningagerð, skýrari verð- og birgðaupplýsingum og fjölda fínpússana sem minnka núning í daglegu starfi.

Hvað er nýtt:

  • Bættu inn nýjum viðskiptavini án þess að fara úr sölureikningum
  • „Sendu reikning“ með einum smelli - Hnappur til að senda sölureikninga
  • Magn á lager sést nú í vörutöflu

Endurbætur:

  • Snjallari gagnainnsláttur - Skýr viðvörun ef reynt er að stofna viðskiptavin sem þegar er til, og auðveldari breytingar á kostnaðar- og magnreitum
  • Skýrara verð - Vöruverð birtist nú á ótvíræðan hátt við innslátt og yfirferð
  • Stílhreinni birgðalistar - Ef birgðageymslur eru óvirkar þá sést sá reitur ekki á skuldunautaspjaldi

Lagfæringar og stöðugleiki:

  • Áreiðanleg vörufærsla -Minus-merkið (–) virkar eðlilega þegar vörum er bætt á reikning
  • Öruggar breytingar á óútgefnum reikningum - Breytingar valda ekki lengur truflunum í birtingu
  • Meðhöndlun viðhengja - Hægt er að eyða viðhengjum á sölureikningum og lánardrottnareikningum

Áhrif og ávinningur:

  • Hraðara vinnuflæði - færri umskiptingar milli skjáa
  • Meiri gæði gagna - skýrari viðvaranir og verðmerkingar
  • Meira öryggi - í birgðum og reikningagerð með hreinna notendaviðmóti


Hafið samband við okkur í gegnum netspjallið á heimasíðu okkar dk.is eða sendið okkur tölvupóst á hjalp@dk.is ef þið hafið einhverjar spurningar.

Dagsetning
11.09.2025
Deila