Beint í efni

18.03.2025

dk og Syndis undirrita samstarfssamning

 
dk hugbúnaður og netöryggisfyrirtækið Syndis undirrituðu nýverið samstarfssamning um innleiðingu öryggislausna Syndis í hýsingarumhverfi dk. Samstarfið, felur í sér þróun og innleiðingu á nýjum öryggislausnum Syndis sem munu auka öryggi viðskiptavina dk enn frekar. 

„Það er mjög ánægjulegt að undirrita þennan samstarfssamning við Syndis. Með yfirburða þekkingu þeirra á netöryggi teljum við að eitt mesta verðmæti okkar viðskiptavina, sem eru gögnin þeirra, verði enn öruggari í okkar höndum. Við höfum því miður séð nýlega mjög slæm dæmi í okkar geira þar sem tilraunir til innbrota hjá hýsingaraðila hafa tekist með mjög slæmum, afleiðingum fyrir bæði fyrirtækið og þeirra viðskiptavini,” segir Trausti Sigurbjörnsson, sviðsstjóri hýsingarsviðs dk. 

dk hefur selt einn vinsælasta viðskiptahugbúnað landsins í yfir aldarfjórðung, alhliða viðskipta- og upplýsingakerfi, sem er þróað á Íslandi fyrir íslenskar aðstæður. Í dag eru notendur dk hugbúnaðar hérlendis um 11.000, úr flestum atvinnugreinum og fjölgar ört. Hýsingarþjónusta dk er ein sú stærsta á landinu í dag og eru yfir 31.000 fyrirtæki í hýsingu hjá dk hugbúnaði. 

“Hýsingarumhverfi dk gerir gífurlegar kröfur um bæði raunlægt og huglægt öryggi á víðum grunni og var innleiðing fjölþátta auðkenningar fyrir alla okkar 11 þúsund notendur stórt skref í þeirri vegferð sem við höldum nú áfram í góðu samstarfi við Syndis,” segir Trausti jafnframt.  

„Við hjá Syndis erum stolt af því að vinna með dk hugbúnaði að því að styrkja öryggi íslenskra fyrirtækja. dk leggur mikla áherslu á öryggi gagna sinna viðskiptavina og þetta samstarf sýnir vel þá framsýni sem fyrirtækið hefur í öryggismálum. Við hlökkum til að nýta okkar sérþekkingu til að vernda gögn og innviði dk og þar með viðskiptavina þeirra,“ segir Anton Egilsson, forstjóri Syndis.  
 

Syndis er leiðandi fyrirtæki á sviði netöryggis á Íslandi. Sérfræðingar Syndis bjóða upp á háþróaðar öryggislausnir og ráðgjöf sem hjálpa fyrirtækjum að greina, verjast og bregðast við sífellt flóknari netógnum. Syndis veitir meðal annars mannaða sólarhringsvöktun í gegnum öryggisvöktun sína (Security Operations Center – SOC). Fyrirtækið vinnur náið með viðskiptavinum sínum að því að styrkja stafræna innviði og tryggja viðskiptaöryggi til framtíðar. 

Grein af vef Viðskiptablaðsins 19. mars 2025.
Sjá fréttina hér

Dagsetning
18.03.2025
Deila