16.09.2026
dk lokar fyrr fimmtudag og föstudag vegna teymisdaga

dk lokar skrifstofunni kl. 14 fimmtudag og kl. 15 föstudag vegna teymisdaga starfsfólks
Fimmtudaginn 17. september lokum við skrifstofunni kl. 14:00 og föstudaginn 18. september lokum við kl. 15:00 vegna teymisdaga starfsfólks sem fram fara í þessari viku.
Teymisdagar sem þessir skipta okkur miklu máli, þeir gefa starfsfólki tækifæri til að efla samstarf, deila þekkingu og styrkja liðsheildina, sem skilar sér í betri þjónustu við viðskiptavini.
Við hvetjum viðskiptavini og samstarfsaðila til að koma fyrirspurnum sem ekki þola bið á framfæri fyrir kl. 14:00 fimmtudag og fyrir kl. 15:00 föstudag.
Utan hefðbundins opnunartíma má einnig hafa samband við neyðarþjónustu okkar.
Við þökkum fyrir skilninginn og vonumst til að þetta valdi sem minnstu raski.