30.12.2025
Áramótavinnslur 2025
Að hverju þarf að huga í dk um áramót?
dk hefur nú verið uppfært hjá öllum þeim sem eru í hýsingu hjá okkur.
Aðilar sem ekki eru í hýsingu hjá okkur þurfa hins vegar að uppfæra kerfið sjálfir og geta nálgast nýjustu uppfærsluna hér.
Með uppfærslunni stofnast bókhaldstímabilið 2026 og nýtt launaár. Þá er einnig hægt að skila launamiðum og skrá staðgreiðsluforsendur og tryggingagjald samkvæmt uppfærðum tölum frá RSK. Því er ekkert sem kemur í veg fyrir að reikna fyrirframgreidd laun með nýjum staðgreiðsluforsendum fyrir árið 2026.
Breytingar hafa orðið á skattþrepum og persónuafslætti, nánari upplýsingar um það á vef Stjórnarráðsins.
Stutt myndbönd
Hér að neðan er búið að taka saman stutt myndbönd sem sýna það helsta sem þarf að hafa í huga í dk um áramót.
- Stofna bókhaldstímabil
- Talningar
- Framkvæmd launa- og verktakamiða
- Afstemmingar skuldalista við fjárhag
- Margt fleira
Birgðir | Vörutalning 3:58
Í þessu myndbandi er farið yfir hvernig talning er gerð í birgðakerfi dk
Birgðir | Núlltalning 2:43
Í þessu myndbandi er farið yfir hvernig núlltalning er gerð í birgðakerfi dk
Launakerfi dk | Launamiðar 2:48
Í þessu myndbandi er farið yfir hvernig launamiðar eru gerðir í launakerfinu og sendir rafrænt til RSK
Launakerfi dk | Nýtt launaár og staðgreiðsluforsendur 1:52
Í þessu myndbandi er farið yfir hvernig nýtt launaár og staðgreiðsluforsendur eru stofnaðar
dk | Verktakamiðar í fjárhag 4:00
Í þessu myndbandi er farið yfir hvernig verktakamiðar eru gerðir í fjárhagskerfi dk
dk | Afstemming skuldalista við aðalbók 2:58
Í þessu myndbandi er farið yfir hvernig skuldalistar í lánardrottnum og skuldunautum eru afstemmdir við aðalbók í fjárhag
dk | Áramótasaldólyklar 2:46
Í þessu myndbandi er sýnt hvernig áramótasaldólyklar eru stilltir á bókhaldslyklum í dk
dk | Opnunarstöður 1:59
Í þessu myndbandi er farið yfir opnunarstöður í dk
dk | Stofna bókhaldstímabil 0:53
Í þessu myndbandi er farið yfir hvernig nýtt bókhaldstímabil er stofnað í dk
dk | Sjálfgefið bókhaldstímabil 0:44
Í þessu myndbandi er farið yfir hvernig sett er á sjálfgefið bókhaldstímabil í dk
dk | Loka bókhaldstímabili 0:56
Í þessu myndbandi er farið yfir hvernig hægt er að loka bókhaldstímabili í dk
Lánardrottnar dk | Verktakamiðar 2:57
Í þessu myndbandi er farið yfir hvernig verktakamiðar eru gerðir í lánardrottnakerfi dk
dk | Núllstilla fylgiskjalanúmer 3:11
Í þessu myndbandi er farið yfir hvernig hægt er að núllstilla fylgiskjalanúmer í dk