16.12.2024
Áramótavinnslur 2024
Að hverju þarf að huga í dk um áramót?
dk kerfið hefur nú verið uppfært hjá þeim sem eru í hýsingu hjá okkur.
Ný uppfærsla aðgengileg á heimasíðu dk fyrir þau sem eru ekki í hýsingu hjá dk og þurfa að uppfæra sjálf.
Búið er að stofna bókhaldstímabilið 2025, nýtt launaár, setja inn staðgreiðsluforsendur og tryggingagjald miðað við uppfærðar tölur frá RSK og er því ekkert því til fyrirstöðu að hægt sé að reikna fyrirframgreidd laun með nýjum staðgreiðsluforsendum fyrir árið 2025.
Hér að neðan má nálgast leiðbeiningar bæði á myndböndum ásamt handbók um það sem viðskiptavinir þurfa að gera sjálfir í dk um áramót. Endilega kynnið ykkur þetta með því að smella á meðfylgjandi slóðir:
Stutt myndbönd
Hér að neðan er búið að taka saman stutt myndbönd sem sýna það helsta sem þarf að hafa í huga í dk um áramót.
- Stofna bókhaldstímabil
- Talningar
- Framkvæmd launa- og verktakamiða
- Afstemmingar skuldalista við fjárhag
- Margt fleira
Birgðir | Vörutalning 3:58
Í þessu myndbandi er farið yfir hvernig talning er gerð í birgðakerfi dk
Birgðir | Núlltalning 2:43
Í þessu myndbandi er farið yfir hvernig núlltalning er gerð í birgðakerfi dk
Launakerfi dk | Launamiðar 2:48
Í þessu myndbandi er farið yfir hvernig launamiðar eru gerðir í launakerfinu og sendir rafrænt til RSK
Launakerfi dk | Nýtt launaár og staðgreiðsluforsendur 1:52
Í þessu myndbandi er farið yfir hvernig nýtt launaár og staðgreiðsluforsendur eru stofnaðar
dk | Verktakamiðar í fjárhag 4:00
Í þessu myndbandi er farið yfir hvernig verktakamiðar eru gerðir í fjárhagskerfi dk
dk | Afstemming skuldalista við aðalbók 2:58
Í þessu myndbandi er farið yfir hvernig skuldalistar í lánardrottnum og skuldunautum eru afstemmdir við aðalbók í fjárhag
dk | Áramótasaldólyklar 2:46
Í þessu myndbandi er sýnt hvernig áramótasaldólyklar eru stilltir á bókhaldslyklum í dk
dk | Opnunarstöður 1:59
Í þessu myndbandi er farið yfir opnunarstöður í dk
dk | Stofna bókhaldstímabil 0:53
Í þessu myndbandi er farið yfir hvernig nýtt bókhaldstímabil er stofnað í dk
dk | Sjálfgefið bókhaldstímabil 0:44
Í þessu myndbandi er farið yfir hvernig sett er á sjálfgefið bókhaldstímabil í dk
dk | Loka bókhaldstímabili 0:56
Í þessu myndbandi er farið yfir hvernig hægt er að loka bókhaldstímabili í dk
Lánardrottnar dk | Verktakamiðar 2:57
Í þessu myndbandi er farið yfir hvernig verktakamiðar eru gerðir í lánardrottnakerfi dk
dk | Núllstilla fylgiskjalanúmer 3:11
Í þessu myndbandi er farið yfir hvernig hægt er að núllstilla fylgiskjalanúmer í dk