Beint í efni

16.02.2026

15% afsláttur af uppsetningu dk skilríkja í febrúar

Rafræn skilríki dk - 15% afsláttur af uppsetningu í febrúar

Með rafrænum dk skilríkjum tengist fjárhagskerfið beint bankanum, sem gerir bókhaldið sjálfvirkara, flýtir vinnslu, eykur öryggi og dregur úr bæði handvirkri vinnu og villum. 

Af hverju dk skilríki?

Sparar tíma og minnkar villuhættu -Allt sem hægt er að framkvæma með dk skilríkjum fer sjálfvirkt í gegnum vefþjónustu – færri skref, minni fyrirhöfn og betri yfirsýn.

Sjálfvirk kröfusending í banka -Reikningur er bókaður → krafa sendist strax í banka án handvirkrar úrvinnslu.

Sjálfvirk móttaka innborgana -Innborganir eru sóttar beint með vefþjónustu. Engin innlestur á kröfuskrám – alltaf rétt staða og uppfært bókhald.

Beinn innlestur bankahreyfinga -Hreyfingar lesnar beint inn í dagbók og/eða  gegnum bankahreyfingar, án þess að fara í gegnum netbanka. Þetta minnkar tvíverknað og tryggir réttar færslur í fyrstu tilraun.

Skil á launaseðlum -Launaseðlar eru sendir rafrænt í birtingarkerfi banka – öruggari og einfaldari leið til afhendingar.

Einföld uppsetning – engin tæknileg fyrirhöfn fyrir notendur - Tækniteymi dk setur skilríkin upp og notendur þurfa ekki að huga að neinu nema að setja upp notendanafn og lykilorð banka.


✨Við bjóðum 15% afslátt af uppsetningu dk skilríkja í febrúar✨ Hafið samband við söludeild dk - sala@dk.is

Dagsetning
16.02.2026
Deila