|
|
|
|
Uppskriftakerfi
Uppskriftakerfið í dk er nokkurs konar viðauki við Birgðir og Sölu. Hlutverk þess er margþætt og nýtist fyrirtækjum úr ýmsum geirum atvinnulífsins, bæði stórum og smáum. Uppskriftakerfið er í raun bæði uppskriftir og framleiðsla. Með uppskriftum er átt við að kerfið heldur utan um “uppskriftir”, þ.e. hvaða hráefni fer í tiltekna vöru og auðveldar t.d. alla reikningagerð, tilboðsgerð og sölupantanagerð, þar sem aðeins þarf að skrá t.d. eina línu í stað margra. Með framleiðslu er átt við að kerfið auðveldar framleiðslu/uppfærslu á stöðu lagers, auk þess að halda utan um stöðu hráefnis (íhluta). Hægt er að fylgjast með því hvaða hráefni er komið nálægt lágmarkslager og síðan má nota þær upplýsingar til að stýra hráefniskaupum fyrirtækisins.
Notandi getur á augabragði séð, á skjá eða prentara, hvað liggur að baki ákveðnu vörunúmeri eða fengið lýsingu á því hvernig framleiða á / eða setja saman ákveðna vöru. Kerfið getur einnig sagt til um hvort hægt sé að framleiða ákveðið magn af tiltekinni vöru miðað við núverandi lagerstöðu. Verðútreikning má framkvæma í kerfinu og er hægt að velja hvort eigi aðeins að sýna breytingu á verði ef hráefnisverðið hefur breyst eða hvort uppfæra eigi verðið á uppskriftarvörunni.
 veldu mynd til að stækka
Uppskrift getur samanstaðið af öðrum uppskriftum og eru engin takmörk fyrir því hve mörg þrepin eru.
Sala á uppskriftarvörum Þegar vara af tegundinni Uppskrift er seld, skráð á sölupöntun eða skráð á sölu-tilboð þá er hægt að skoða innihald uppskriftarinnar og breyta henni, bæta inn í hana og fleira.
Helstu kostir:
• Hægt að afrita eldri uppskriftir yfir í nýja og spara þannig innslátt • Í sölukerfinu má kalla fram sundurliðaða uppskrift á sölupöntun, sölutilboði eða sölureikning. Þannig má nota uppskrift til að spara vinnu við reikninga sem alltaf innihalda sömu vöru. • Við hverja uppskrift er hægt að tengja framleiðslulýsingu
|
|
|