|
|
|
|
Áskriftakerfi
Grunnur áskriftakerfisins hefur að geyma skuldunauta, hópaflokka (áskriftaflokkar) og hópa (áskriftir) og ýmsar aðgerðir tengda þeim.
Hópaflokkar Hópaflokkar er eitt af þrem hugtökum í áskriftakerfinu. Hópaflokkur inniheldur hópa og hver hópur inniheldur síðan skuldunauta.
Hópar Hópar er eitt af þrem hugtökum í áskriftakerfinu. Hver hópur inniheldur safn af skuldunautum.
Skýrslur Í áskriftakerfinu er að finna aragrúa af skýrslum, bæði stöðluðum og uppsetjanlegum. Allar skýrslur má fá prentaðar á skjá eða prentara.
 veldu mynd til að stækka
Það er afar mikilvægt að átta sig á því hvernig best er að byggja upp áskriftakerfið og er það aðallega fólgið í því að setja sig vel inn í hvernig best er að nota hópa og hópaflokka, hvernig þeir eru stofnaðir, hvernig skuldunautar eru settir í hóp, hvernig hópar eru settir í hópaflokk, hvernig má afrita úr einum hóp í annan, o.s.frv. Það er afar mikilvægt að notendur áskriftakerfisins ákveði strax í upphafi hvaða hópa og hópaflokka þeir koma til með að stofna.
Helstu kostir:
• Mikill sveigjanleiki. Engar takmarkanir á fjölda áskriftategunda og áskrifta • Getur tengst þjóðskrá • Mikill fjöldi skýrslna og yfirlita • Hraðvirk, einföld og ódýr viðbót við dk skuldunautakerfið
|
|
|