|
|
|
|
hugbúnaður
Heildstætt kerfi Notendaviðmót er samræmt milli allra kerfishluta í dk. Þetta gerir það að verkum að reynsla og kunnátta notenda nýtist að fullu þegar nýr kerfishluti er tekinn í notkun.
Mikill hraði og öryggi Kerfið notar hinn öfluga og heilstæða gagnagrunn Pervasive SQL. Það tryggir auðveldan aðgang að upplýsingum og mikinn hraða við framsetningu þeirra.
Notendavænt Notandaviðmótið er allt myndrænt sem hefur þann kost í för með sér að hægt er að opna marga óskylda glugga samtímis og skoða gögnin frá ýmsum sjónarhornum.
Al íslenskt kerfi Kerfið er hannað alveg frá grunni af starfsmönnum dk og er með eiginleika sem ekki finnast í hugbúnaði stórfyrirtækja. Öll sambærileg windows samhæfð kerfi eru innflutt og aðlöguð að íslenskum aðstæðum.
Kerfiseiningar Kerfið er byggt upp af mörgum kerfis-einingum sem velja má saman eftir þörfum. Auðvelt er að byrja með fáa kerfishluta og bæta síðan við eftir því sem þörf krefur.
Auðvelt í uppsetningu Afar auðvelt er að taka kerfið í notkun. Það kemur nánast að segja full uppsett á geisladiski ásamt leiðbeiningum. Með kerfinu fylgja full uppsett fyrirtækjaform með tilbúinn bókhaldslykil tengdum við undirkerfi, uppsettan rekstrar- og efnahagsreikning ásamt sundurliðunum og sjóðstreymi. Einnig fylgir mjög öflugt hjálparkerfi sem aðstoðar notandann í upphafi við að stofna sitt fyrirtæki, ákvarða tegund rekstrar og þá um leið að velja rétt fyrirtækjaform. Að lokum sér það um að ganga frá öllum tengingum við valið bókhaldslyklasett.
Hér geturðu skoðað eða prentað út kynningarbækling um dk viðskipta- og upplýsingakerfið. Bæklingurinn er á "Adobe Acrobat" formi, ef þú ert ekki með Acrobat Reader þá getur þú sótt hann hér. |
|
|
|