|
|
|
|
Verk
Verkkerfið sem er að öllu leyti samtengt öðrum kerfishlutum í dk Viðskipta- og upplýsingakerfinu er notað við stýringu verka. Það fylgist með kostnaði og notkun forða (tímaskráningu starfsfólks) og veitir möguleika á að gera áætlanir fyrir verk og úthluta forða, skrá á þau vinnu, tekjur og annan kostnað.
 veldu mynd til að stækka
Grunnur verkkerfisins hefur að geyma verk og dagbækur til að skrá og bóka hreyfingar. Öflugar uppflettivinnslur eru sem auðvelda allar fyrirspurnar- og leitaraðgerðir. Færslur má rekja þangað sem þær enda, í verkkerfið, eða til upprunans í hvaða undirkerfi sem er.
Verk Í stofnskrá verka má skrá margs konar upplýsingar. Hvert verk er auðkennt með númeri sem getur verið allt að 12 stafa langt, bæði bók- og tölustafir. Almennar upplýsingar fylgja svo sem verkheiti (verklýsingu), yfirverk, greiðandi, verkflokkur, eigandi, umsjónarmaður, starfsmaður, tegund verks, staða verks, útskuldunarmáti, áætluð verkbyrjun og áætluð verklok.
Verkdagbækur Í verkdagbækur má skrá inn tímavinnu, akstur og kostnað. Tímavinnu er hægt að skrá inn sem heildartíma t.d. 3 klst. eða sem unnið frá og til, þ.e. frá 09:00 til 11:00 og sér kerfið sjálft um að umreikna. Með því að nota frá og til tíma getur starfsmaður skráð sig inn á verk í byrjun og út í lokin. Akstur er hægt að skrá inn sem km eða ferð. Kostnaður er skráður út af lager.
Öflugar uppflettivinnslur (fyrirspurnir) Allar uppflettingar og fyrirspurnir eru til fyrirmyndar í verkkerfinu. Haldið er vel utan um allar færslur og hvernig þær urðu til. Almennar uppflettingar eru þannig að skoða má hreyfingar á einstaka verki, starfsmanni, skuldunaut og fleira.
Mikill fjöldi skýrslna Í verkkerfinu er að finna aragrúa af skýrslum, bæði stöðluðum og uppsetjanlegum. Í verkkerfinu er undirvinnsla sem heitir Skýrslur. Hún inniheldur allar staðlaðar skýrslur sem nauðsynlegt er að ná út úr verkkerfinu. Allar skýrslur má fá prentaðar á skjá eða prentara, einnig má prenta út í skrá (Csv, Pdf eða Html format) og senda skýrslur í tölvupóst (sem Pdf skjal eða Html skjal).
Verkgreining Í Verkkerfinu er að finna fjórar greiningarvinnslur. Annars vegar er um að ræða þrjú greiningartré og hins vegar lykiltölugreiningu. Þessar greiningarvinnslur hjálpa til við að sjá yfirlit yfir verkkerfið á samandregnu formi.
Reikningavinnslur Prenta má út reikninga í verkkerfinu. Það má einnig prenta út fylgiseðla með reikningum sem eru nánari sundurliðun á þeim.
Áætlanir Í Verkkerfinu er hægt að hafa nákvæmt eftirlit með tímaskráningu, kostnaði og notkun forða. Með því að fastsetja afkastagetu forða er hægt að segja fyrir um hve mikill forði er til ráðstöfunar og stjórna honum.
Helstu kostir:
• Mjög ítarleg verkaskrá • Skráningabækur fyrir tíma og kostnað • Öflugar uppflettivinnslur • Víddir • Öflugar áætlanir • Öflug greiningartól • Lykitölugreining • Öflugar Leiðréttingavinnslur
|
|
|