Innkaup
Innkaupakerfið í dk samanstendur af vörumóttökukerfi, pantanakerfi og tollkerfi. Vörumóttökukerfið býður upp á öfluga skráningu á reikningum frá lánardrottnum. Pantanakerfið getur komið með sjálfvirkar pantanatillögur út frá margvíslegum skilyrðum. Tollkerfið sér um alla tollskýrslugerð og verðútreikninga vegna innkaupa á vörum frá erlendum lánardrottnum.

veldu mynd til að stækka
Innkaupaferlið
Innkaupaferlið getur t.d. verið þannig að búin er til sölupöntun og þær vörur sem ekki er til næginlegt magn af og því ekki hægt að afgreiða má flytja yfir á innkaupapöntun. Sölupöntunin fær stöðuna hlutaafgreidd. Innkaupapöntunin er send með tölvupósti til lánardrottins. Þegar vörurnar koma til landsins er vörureikningurinn borinn saman við innkaupapöntunina og innkaupapöntunin send yfir í vörumóttöku og yfir á tollskýrslu sem send er tollstjóra í gegnum SMT (EDI). Verðútreikningur er framkvæmdur, lagerstaða og verð uppfærð og vörukaup bókast í fjárhags- og lánardrottnakerfið. Að síðustu er síðan sölupöntunin afgreidd. Þetta ferli getur verið nánast alsjálfvirkt, sem þýðir að mikil vinna sparast og villum fækkar.
Innkaupakerfið í dk tengist birgðakerfinu, lánardrottnakerfinu, sölukerfinu og fjárhagskerfinu.
Vörumóttaka
Heldur utan um alla vörureikninga sem berast fyrirtækinu. Mjög öflug innskráning þar sem skráðar eru inn allar upplýsingar sem koma fram á vörureikningum, svo sem reikningsnúmer, dagsetningar, afslætti og ýmsa kostnaðarliði. Verðútreikningur skilar út kostnaðarverði á einingu sem síðan er borið saman við eldra kostnaðarverð á einingu á lager. Einnig er borið saman innkaupsverð (erlent einingarverð) á vörureikningi við eldra innkaupsverð á lager og þannig er hægt að fylgjast með hvort einhverjar verðbreytingar hafi orðið hjá lánardrottninum. Hægt er að prenta út verðútreikninginn. Vörumóttakan bókast síðan beint í fjárhagskerfið, lánardrottnakerfið og birgðakerfið.
Innkaupapantanir
Heldur utan um innkaupapantanir og vörur í pöntun ásamt ýmsum upplýsingum, svo sem pöntunardagsetningu og áætlaðri komudagsetningu. Hægt er að útbúa pantanatillögur út frá ýmsum forsendum, svo sem sölusögu, lágmarkslager, hámarkslager, pöntunaráætlun, afgreiðslufresti og taka tillit til vara í sölupöntun og eldri innkaupapöntunum. Haldið er vel utan um stöðu pantana, svo sem Í vinnslu, Send, Afgreidd, Hlutaafgreidd, Í geymslu og Hætt við. Ýmsar skýrslur má prenta út, svo sem yfirlit yfir innkaupapantanir, yfirlit yfir vörur í innkaupapöntunum, ýmsa pantanlista og stöðuskýrslur.
Tollkerfi
Sækir innkaupapöntun eða vörumóttöku og útbýr tollskýrslu og sendir hana rafrænt til tollyfirvalda með SMT (EDI) samskiptum. Heldur utan um tollskrá, með öllum leyfum og bönnum, tolltöxtum og gjöldum, ásamt öðrum upplýsingum sem tengjast viðkomandi tollskrárnúmeri.
Helstu kostir:
• Öflug vörumóttaka
• Innkaupapantanir
• Innkaupatillögur
• Rafræn sending á innkaupapöntunum (EDI)
• Rafræn móttaka á vörureikningum (EDI)
• Öflugt tollkerfi
• Öflug greiningartól