11.08.2026
Við lokum kl. 14 vegna sólmyrkvans
Miðvikudaginn 12. ágúst lokum við skrifstofunni kl. 14:00 vegna sólmyrkvans sem verður sýnilegur víða um land.
Reikna má með aukinni umferð í tengslum við atburðinn og því viljum við auðvelda starfsfólki að komast heim áður en umferð þyngist.
Við hvetjum viðskiptavini og samstarfsaðila til að koma fyrirspurnum sem ekki þola bið á framfæri fyrir kl. 14:00 og minnum á neyðarþjónustu okkar, sem hægt er að hafa samband við utan hefðbundins opnunartíma.
Við hvetjum jafnframt alla sem hafa áhuga á að kynna sér sólmyrkvann nánar að heimsækja upplýsingasíðu Stjörnu Sævars, Almyrkvi á sólu á Íslandi 2026.
Við þökkum fyrir skilninginn og óskum öllum ánægjulegrar upplifunar af þessum einstaka náttúruviðburði.