07.04.2025
Gagnaöryggi: Lykilatriði fyrir öll fyrirtæki
Gagnaöryggi: Lykilatriði fyrir öll fyrirtæki
Gagnaöryggi hefur aldrei skipt meira máli þar sem tilraunir til netárása og gagnainnbrota á undanförnum misserum hafa leitt til mikils tjóns fyrir fyrirtæki og viðskiptavini þeirra. Nýleg dæmi um árásir á hýsingaraðila hafa sýnt fram á hversu nauðsynlegt það er að tryggja öryggi gagna og vera skrefi á undan ógninni.
Hjá dk hugbúnaði leggjum við mikla áherslu á gagnaöryggi og kappkostum að vernda gögn viðskiptavina okkar. Þetta gerum við með þremur lykilþáttum:
1. Innlend hýsing – Öryggi og traust
Með því að hýsa gögn á Íslandi tryggjum við að þau falli undir íslensk lög og reglugerðir sem veitir aukið öryggi þar sem hvers kyns atburðir erlendis og mögulegt rof á sæstreng hefur ekki áhrif á gögn okkar viðskiptavina. Öryggi viðskiptavina er tryggt með ströngustu kröfum um vélbúnað, kerfissali, gagnatengingar, varaaflsstöðvar, aðgangsstýringar, vírusvarnir, bruna- og vatnsleka varnir, auk stöðugs eftirlits fagmanna allan sólarhringinn.
Hýsingarþjónusta dk hugbúnaðar tryggir:
- Öruggt vinnuumhverfi
- Sjálfvirka afritun
- Reglulegar öryggisuppfærslur
- Öruggt aðgengi að gögnum
2. Fjölþátta auðkenning (MFA) með DUO
Til þess að auka öryggi notenda okkar enn frekar höfum við innleitt fjölþátta auðkenningu (MFA) með fjölþátta lausninni DUO frá Cisco.
Fjölþátta auðkenning felur í sér að notendur þurfa að nota fleiri en eina tegund staðfestingar til að skrá sig inn – t.d. Notendanafn, lykilorð og meldingu gegnum síma.
Með því er hægt að tryggja að jafnvel þó að lykilorð notenda komist í rangar hendur er aðgangur að kerfinu tryggur.
3. Verðmæti gagna fyrir fyrirtæki – Öryggi í forgrunni
Gögn eru orðin ein af dýrmætustu eignum fyrirtækja, en jafnframt skotmark aðila sem reyna að komast yfir þau.
Með öruggu hýsingarumhverfi, afritun og öflugu öryggiskerfi tryggjum við að gögn viðskiptavina okkar séu varin gegn netárásum, gagnastuldi og óheimiluðum aðgangi.
Við tryggjum:
- Stöðuga öryggisvöktun
- Reglulegar uppfærslur
- Öfluga dulkóðun gagna
- Virkt varnarkerfi gegn netárásum
- Skipulagðar árásaræfingar fagaðila
Við erum alltaf skrefi á undan
Með því að sameina þessa þrjá lykilþætti – innlenda hýsingu, fjölþátta auðkenningu og öryggi gagna – tryggjum við að viðskiptavinir okkar geta treyst því að gögnin þeirra séu í öruggu umhverfi.
Gagnaöryggi er ekki einungis valkostur heldur nauðsyn fyrir öll fyrirtæki sem vilja tryggja traust og stöðugleika í rekstri sínum.