15.06.10 | Bókunarkerfi
15.06.10 | Besta, með heildarlausn frá dk hugbúnaði ehf
15.03.10 | dk Framtal - einstaklingsframtal
 
Sjá eldri fréttir
   
Leit:


Lotukerfi

Mörg fyrirtæki þurfa að fylgjast sérstaklega með einstökum einingum af hverri vörutegund og ákveðinni framleiðslu á mörgum einingum af tiltekinni vörutegund. Framleiðslan er þá merkt lotunúmeri og er þá hægt að fylgjast nákvæmlega með lotunni, hvenær hún var lögð inn á lager, hvenær hún fyrnist, hverjir hafa keypt úr henni o.s.frv.

Við þurfum að merkja við “Nota lotur” ef tengja á lotur við vöruna.

Lotur fyrir vöruna eru síðan stofnaðar undir möppu sem heitir Lotur.

ATH. Hver vara getur tengst mörgum lotum, en hver lota getur aðeins tengst einni vöru.

Með því að kalla upp upplýsingatré vörunnar má sjá síðustu hreyfingar á vörunni og upplýsingar um tilheyrandi lotur, svo sem stöðu hennar, þ.e. hve mikið magn er eftir í lotunni og fyrningardag.



veldu mynd til að stækka

Með því að smella á plúsinn fyrir framan Lotur má sjá yfirlit yfir lotur og síðan með því að smella á plúsinn fyrir framan einstaka lotu má sjá hvaða skuldunautar (deildir) hafa fengið úr lotunni.

Stofna lotur
Sérstök skrá er til að halda utan um lotur. Í skránni er ein færsla fyrir hverja innlagða lotu.


veldu mynd til að stækka

Upplýsingar sem skrá þarf inn um hverja lotu má sjá á næstu mynd.

 
veldu mynd til að stækka

Skrá þarf inn lotunúmer, framleiðsludag og fyrningardag (lokadag). Frjálst er að skrá skýringu (lýsingu á lotunni).

Hver lota getur aðeins tengst einu vörunúmeri, en hvert vörunúmer getur tengst mörgum lotum.

Skrá lotur inn og út úr birgðageymslu (lager)
Vörur er hægt að skrá inn í birgðageymslu (lager) í vörumóttöku og birgða-skráningu inn á lager.

Vörur er hægt að skrá út úr birgðageymslu (lager) í sölupöntun, sölureikningi, verkreikningi, vörumóttöku og birgðaskráningu út af lager.

Vörur er hægt að millifæra á milli birgðageymslna (lagera) í millifærslu í birgða-skráningu.

Vörur eru skráðar inn á lager (birgðageymslu) í vinnslunni Birgðir > Birgða-breytingar > Birgðaskráning.

 
veldu mynd til að stækka

Skrá þarf inn dagsetningu innlagnar, birgjann, vörunúmerið, birgðageymslu, fyrningardag, magn, innkaupsverð og skýringu. Tegundin er alltaf “Hreyfing” þegar verið er að skrá vörur inn á lager. Kerfið kemur með síðasta innkaupsverð og má breyta því ef þurfa þykir. Ef viðkomandi vara er aðeins til í einni birgða-geymslu þá kemur hún sjálfkrafa. Ef aðeins ein lota tengist vörunni þá kemur sjálfkrafa fyrningardagur hennar. Ef varan tengist mörgum lotum þá kemur sjálfkrafa fyrningardagur fyrstu lotu. Notandi getur slegið á F2 fletta og valið viðeigandi lotu. Skýringu er frjálst að slá inn.

Ef til er vöruskráning í Excel þá má lesa hana inn í birgðaskráningu með því að velja F5 Valmynd og velja þar Lesa lotuskráningu. Tölvan spyr þá um heiti á Excel skránni (á CSV formi).

Vörur eru skráðar út af lager (birgðageymslu) í vinnslunni Birgðir > Birgða-breytingar > Birgðaskráning.

              
veldu mynd til að stækka            veldu mynd til að stækka

Þegar verið er að skrá vörur út af lager er slegið inn mínus (-) magn og síðan þarf að velja í tegund hvort um sé að ræða “Rýrnun”, “Skilað” eða “Afskrifað”. Að sjálfsögðu þarf að velja rétta lotu (fletta í “Fyrningardagur” og velja viðeigandi lotu).

Skýrslur
Margvíslegar skýrslur má prenta út úr dk er snerta upplýsingar um lagerstöður, en undir möppunni Lotur eru þrjár sérhæfðar skýrslur sem birta upplýsingar um lotur, fyrningardag, rýrnun, skilað, selt og afskrifað.

Dæmi um skýrslur:

Fyrningarskýrsla lota
sýnir yfirlit yfir vörur sem eru að renna út á fyrningardag.
Fyrningarskýrsla seldra lota sýnir yfirlit yfir þær vörur sem búið er að selja og eru að renna út á fyrningardag.
Vörur – Lotulisti sýnir yfirlit yfir vörur og lotur sem tilheyra þeim.



veldu mynd til að stækka

Helstu kostir:

• Mikill sveigjanleiki
• Engar takmarkanir