15.06.10 | Bókunarkerfi
15.06.10 | Besta, með heildarlausn frá dk hugbúnaði ehf
15.03.10 | dk Framtal - einstaklingsframtal
 
Sjá eldri fréttir
   
Leit:


Afsláttarvinnslur

Í dk viðskiptahugbúnaðinum eru nokkrar afsláttarvinnslur. Setja má upp töflu yfir afslætti í prósentum, töflu yfir magnafslætti og töflu yfir samningsbundin verð.

Afsláttartafla
Setja má upp töflu yfir afslætti til skuldunauta. Setja má upp afslætti fyrir einstaka skuldunauta eða hóp af skuldunautum (skuldunautaflokk).


veldu mynd til að stækka

Nauðsynlegt er að tilgreina hvort samningsbundna verðið á að tilheyra skuldunaut eða skuldunautaflokki og hvort samningsbundna verðið á að ná til sölu á vöru, vöruflokki eða afsláttarflokki. Síðan þarf að slá inn prósentu og gildistíma. Lang algengast er að setja upp samningsbundið verð fyrir ákveðna vöru og tengja það ákveðnum skuldunaut eða ákveðnum skuldunautaflokk, annað er varla hagkvæmt.

Aðgerðir
Nokkrar aðgerðir bjóðast í tengslum við magnafslætti. 

Velja má

Til að ...

Skýrsla – samningsbundin verð

Prenta lista yfir samningsbundin verð.  Listann má fá raðaðan á skuldunauta/skuldunautaflokka eða vörur/vöruflokka.

Fella samningsbundin verð

Fella niður færslur yfir samningsbundin verð.  Gefa þarf upp dagsetningu á gildistíma.  Markmiðið með þessari vinnslu er að fella niður allar færslur yfir samningsbundin verð sem eru fallin úr gildi, þ.e. gildistími þeirra er liðinn.

Framlengja gildistíma

Framlengja gildistíma færslna fyrir samningsbundin verð.  Hér er hægt að gefa upp ákveðinn gildistíma og framlengja hann (gefa upp nýja dagsetningu).

Magnafsláttur

Setja upp viðbótartöflu yfir viðbótarafslætti sem eru háðir seldu magni.  Er þá veittur viðbótarafsláttur á samningsbundna verðið.





Magnafsláttur
Ef vilji er fyrir því að veita skuldunautum eða skuldunautum í ákveðnum skuldunautaflokk magnafslátt á samningsbundið verð á vöru, vöruflokk eða afsláttarflokk þá er hægt að stofna færslu í töflu yfir magnafslætti.

Skoða afsláttarprósentu og samningsbundin verð
Til að skoða uppsettar afsláttarprósentur og samningsbundin verð má velja frá aðalvalmynd birgðakerfis.
Afsláttarvinnslur > Afsláttartafla eða Samningsbundin verð.
Einnig má skoða afslætti og samningsbundin verð hjá ákveðnum skuldunaut með því að velja frá aðalvalmynd skuldunautakerfis.
Skuldunautar > og finna tiltekinn skuldunaut og kalla upp upplýsingatré hans (Ctrl + T).


veldu mynd til að stækka

Í upplýsingatré skuldunautsins má sjá allar upplýsingar um afslætti og samningsbundin verð eins og sést á myndinni hér fyrir ofan.
Á sama hátt má skoða afslætti og samningsbundin verð tengt ákveðinni vöru með því að velja frá aðalvalmynd birgðakerfis.
Vörur > og finna tiltekna vöru og kalla upp upplýsingatré hennar (Ctrl + T).


veldu mynd til að stækka

Í upplýsingatré vöru má sjá allar upplýsingar um hvaða skuldunautar hafa afslætti eða samningsbundið verð á vöruna eins og sést á myndinni hér fyrir ofan.


Helstu kostir:

• Mikill sveigjanleiki
• Engar takmarkanir