15.06.10 | Bókunarkerfi
15.06.10 | Besta, með heildarlausn frá dk hugbúnaði ehf
15.03.10 | dk Framtal - einstaklingsframtal
 
Sjá eldri fréttir
   
Leit:


Sölugreining

Með sölugreiningu gefst tækifæri á að greina sölu og framlegð fyrirtækisins niður á einstaka vörur og vöruflokka, viðskiptamenn, sölumenn og tímabil. Hægt er að fylgjast með því hvernig salan er að þróast dag frá degi og fá þannig strax upplýsingar um hvort sölumarkmið séu að nást. Þannig nýtist sölugreiningin sem mikilvægt stjórntæki sem gerir mögulegt að grípa til aðgerða áður en það er um seinan. Þá nýtist sölugreiningin einnig til að meta arðsemi einstakra vara og vöruflokka, einstakra viðskiptamanna og fleira.

Í sölukerfinu er auðvelt að fylgjast með “stóru myndinni” og fá svör við spurningum eins og hvernig er salan að þróast frá degi til dags, frá viku til viku, frá mánuði til mánaðar. Hvernig eru sölumenn að standa sig frá degi til dags, frá viku til viku og frá mánuði til mánaðar. Hvernig eru skuldunautar að versla við okkur frá degi til dags, frá viku til viku og frá mánuði til mánaðar. Hversu mikið er keypt af ákveðnum vörur frá degi til dags, frá viku til viku og frá mánuði til mánaðar.

Greiningartré
Hægt er að velja að skoða söluna fyrir ákveðið tímabil og brjóta hana upp á tímabil, skuldunauta, vörunúmer, vöruflokka, sölumen eða vörumóttakendur. Frekara niðurbrot er síðan mögulegt fyrir skuldunauta, vörunúmer, vöruflokka, sölumenn og vörumóttakendur.
Við getum valið að afmarka við ákveðna skuldunauta, skuldunautaflokka, vörunúmer, vöruflokka og sölumenn.


veldu mynd til að stækka

Hér sjáum við að valið var að skoða tímabilið frá 01.01.2005 til 31.03.2005 og við sjáum upplýsingar um heildar magn, heildar kostnað, heildar sölu án VSK, heildar sölu með VSK, fjölda útgefna reikninga, framlegð í kr. og % og heildar afslátt í kr. og %. Með því að smella á plústáknið framan við viku er hægt að sjá daga. Með því að velja Hreyfingar frá [F5 Valmynd ] er hægt að grafa sig ofan í hreyfingar á bak við valinn lið í greiningunni. Með því að velja Graf frá [F5 Valmynd ] er hægt að skoða söluna myndrænt. Ef við veljum Graf yfir sölu án VSK fáum við eftirfarandi mynd


veldu mynd til að stækka

Hér getum við prentað út sölugreininguna með því að velja [F7 Prenta ].
Við getum einnig sent sölugreininguna yfir í Excel til frekar úrvinnslu með því að velja í [F5 Valmynd ] Senda yfir í Excel.


Helstu kostir:

• Notendur eru fljótir að tileinka sér notkun vinnslanna
• Hægt er að skoða gögn út frá mörgum mismunandi sjónarhornum
• Auðvelt að sjá þróun lykilstærða fyrir hvern skuldunaut, sölumann, vöru og vöruflokk
• Minni þörf fyrir skýrslugerð
• Ekki er þörf á langri og erfiðri uppsetningarvinnu með tilheyrandi tilraunum og prófunum