15.06.10 | Bókunarkerfi
15.06.10 | Besta, með heildarlausn frá dk hugbúnaði ehf
15.03.10 | dk Framtal - einstaklingsframtal
 
Sjá eldri fréttir
   
Leit:


Birgðagreining

Markvisst eftirlit með innkaupum og birgðahaldi er gríðarlega mikilvægur þáttur í rekstri fyrirtækja sem byggja afkomu sína á vörusölu.

Í birgðakerfinu er auðvelt að fylgjast með “stóru myndinni” og fá svör við spurningum eins og hvernig er verðmæti lagers í dag samanborið við sama dag fyrir ári. Fjórar greiningarvinnslur eru í birgðagreiningunni: Greiningartré birgða, Sölugreining birgða, ABC greining birgða og Líftími birgða.

Greiningartré birgða
Hægt er að velja vöruflokk, vörunúmer og tímabil til greiningar. Val á dálkum fer fram með því að haka við viðkomandi dálk. Að því loknu er ýtt á [F12 Staðfesta] og birtist þá eftirfarandi mynd. 
  

  
veldu mynd til að stækka

Hér sjáum við að valið var að skoða tímabilið frá 01.01.2005 til 31.12.2005 og við sjáum upplýsingar um magn í byrjun tímabils, magn skráð inn á tímabilinu, magn skráð út á tímabilinu, selt magn á tímabilinu, staða í lok tímabils, verðmæti lagers, meðalbirgðir, kostnaðarverðmæti sölu, veltuhraði og veltuhraði í dögum. Með því að velja Hreyfingar frá [F5 Valmynd ] er hægt að grafa sig ofan í hreyfingar.

Sölugreining birgða
Í þessari vinnslu fæst svipuð niðurstaða og í greiningartré birgða nema hvað hér sést salan og framlegðin. Með því að velja Hreyfingar frá [F5 Valmynd ] er hægt að grafa sig niður í gögnin alveg eins og að ofan.

ABC greining birgða
ABC greining birgða flokkar allar vörur eftir fyrirfram ákveðnum forsendum sem slegnar eru inn. ABC greiningin flokkar vörur eftir tekjum, framlegð, kosnaði, afslætti eða magni. Því er í raun um að ræða fimm mismunandi greiningar, því ein og sama varan getur t.d. verið í B flokki hvað varðar tekjur, en í A flokki yfir framlegð.
ABC greininguna má meðal annars nota til að sjá hvaða vörur eru að skila stærstum hluta veltunnar. Einnig er hægt að sjá hvort einhverjar vörur séu að skila neikvæðri framlegð og því hægt að taka ákvörðun um hvaða vörur eiga að hækka í verði eða hætta að versla með. Einnig er hægt að bera saman hvaða vörur eru að skila mestri framlegð (ef verið er að selja sambærilegar vörur) og því leggja megin áherslu á að selja “réttar” vörur.
Vörum er skipt í 3 flokka A, B og C. Vörur í flokki A eru þær vörur sem skila mestum tekjum eða framlegð eða eru með minnsta kostnað. Vörur í flokki C eru að skila minnst og vörur í flokki B eru á milli vara í flokki A og C. Hægt er að skilgreina hve stór hver flokkur skuli vera, t.d. A = 80%, B = 15% og C = 5%. Algengt er að um 20% af vörunum skili 80% af framlegðinni og það eru því þær vörur, að öðru jöfnu, sem leggja þarf hvað mesta áherslu á að selja.
Við veljum frá aðalvalmynd birgða Birgðagreining > ABC greining birgða


veldu mynd til að stækka

Ef valið er F12 Staðfesta þá birtist eftirfarandi mynd


veldu mynd til að stækka

Hér sjáum við þær vörur sem lenda í A flokki, B flokki og C flokki. Þær má síðan skoða nánar með því að velja vinnslur í [F5 Valmynd ], svo sem skoða hreyfingar sem eru á bak við vöru.

Líftími birgða
Birtir líftíma þeirra vara sem hreyfast hægast. Með því að velja Hreyfingar frá [F5 Valmynd ] er hægt að grafa sig niður í gögnin alveg eins og í öðrum greiningar-vinnslum.


Helstu kostir:

• Notendur eru fljótir að tileinka sér notkun vinnslanna
• Hægt er að skoða gögn út frá mörgum mismunandi sjónarhornum
• Auðvelt að sjá þróun lykilstærða fyrir hverja vöru og vöruflokk
• Minni þörf fyrir skýrslugerð
• Ekki er þörf á langri og erfiðri uppsetningarvinnu með tilheyrandi tilraunum og prófunum