|
|
|
|
Sölupantakerfi
Sölupantanakerfið er hluti af sölukerfinu í dk viðskiptahugbúnaðinum. Þar eru skráðar pantanir frá viðskiptavinum og vörur teknar frá í birgðakerfinu. Þegar pöntun er komin inn í kerfið er hægt að vinna með hana á margvíslegan hátt. Hægt er að afgreiða hluta af pöntun og heldur kerfið þá sjálfkrafa utan um það sem vantar á pöntunina.
 veldu mynd til að stækka
Þegar sölupöntun er stofnuð þá athugar kerfið úttektarhámark, skuldahámark, verðsamninga, afsláttarkjör og ýmsar aðrar upplýsingar um viðskiptavininn. Sölupöntunina má síðan prenta út eða senda með tölvupósti.
Helstu kostir:
• Heldur utan um hlutaafgreiddar pantanir (biðpantanir) og hlutaafhendingu sjálfvirkt • Heldur utan um ýmsar dagsetningar, svo sem dagsetningu sölupöntunar, væntanlegan afhendingardag, staðfestan afhendingardag og endanlegan afhendingardag • Geymir afgreiddar sölupantanir (og upprunalegu sölupöntun) þannig að pöntunarsaga varðveitist • Hægt að sameina pantanir til viðskiptavina á einn reikning • Hægt að senda afgreiðsluseðil inn á lager svo hægt sé að taka til pöntun áður en reikningur er gerður • Hægt að flytja eftirstöðvar pöntunar (magn vöru sem ekki er til á lager) yfir á innkaupapöntun • Uppsetjanleg eyðublöð, svo sem sölupöntun, pöntunarstaðfesting, afgreiðsluseðlar og ýmsir aðrir fylgiseðlar • Hægt að prenta út margar skýrslur, svo sem yfirlit yfir vörur í pöntun, yfirlit yfir hvað viðskiptavinir hafa pantað, yfirlit yfir verðmæti pantana og yfirlit yfir innkaupaþörf byggða á vörum í sölupöntun, vörum í innkaupapöntun og vörum á lager
|
|
|