15.06.10 | Bókunarkerfi
15.06.10 | Besta, með heildarlausn frá dk hugbúnaði ehf
15.03.10 | dk Framtal - einstaklingsframtal
 
Sjá eldri fréttir
   
Leit:


Sölumenn


Ef nokkrir sölumenn vinna í viðkomandi fyrirtæki er hægt að stofna þá og úthluta hverjum þeirra númeri. Ýmsar upplýsingar má skrá inn um hvern sölumann. Hver sölumaður hefur síðan sína eigin dagbók (minnisbók/samskiptabók).

Setja má upp reglur fyrir sölulaunum til sölumanna.

Upplýsingatré Sölumanns
Í upplýsingatré sölumanns er hægt að sjá allar upplýsingar tengdar viðkomandi sölumanni, svo sem yfirlit yfir sölutilboð sem sölumaðurinn er með stofnuð, yfirlit yfir sölupantanir, opna reikninga og þá viðskiptavini sem tengjast honum. 


veldu mynd til að stækka

Með því að smella á plúsinn fyrir framan Skuldunautar má sjá alla skuldunauta sem tilheyra viðkomandi sölumanni.

Minnisbók sölumanns
Í Minnisbók sölumanns má skrá ýmsar viðbótarupplýsingar um sölumanninn. Hægt er að vera með mörg blöð og getur hvert blað innihaldið margar síður. Prenta má valin blöð út úr minnisbókinni. Fyrir sölumann getur verið hentugt að stofna sér síðu fyrir helstu viðskiptavini sem tilheyra sölumanninum og skrá síðan inn samskipti við þá. 


veldu mynd til að stækka

Með því að smella á hnappinn [Bæta við...] má stofna nýtt blað (flipa) í minnisbókinni og með því að smella á hnappinn [Prenta...] þá má prenta út upplýsingar úr minnisbókinni. Hægt er að velja ákveðin blöð eða öll blöð.

Sölugreining
Hægt er að skoða sölumenn á sölugreiningarformi. Velja má að skoða sölumenn út frá tímabilum og brjóta því næst t.d. upp á skuldunauta eða skoða sölumenn út frá skuldunautum og brjóta því næst upp á t.d. vörur, o.s.frv. 


veldu mynd til að stækka

Sölugreining sölumanna svarar spurningum eins og:

• Hvernig eru sölumenn að standa sig borið saman við áætlun
• Hverjir eru bestu sölumennirnir í ákveðnum mánuði, ákveðnum ársfjórðungi, ákveðnu ári, o.s.frv.
• Hvað hefur hver sölumaður gefið út marga reikninga í ákveðnum mánuði, ákveðnum ársfjórðungi, ákveðnu ári og hver er framlegðin, hve mikinn afslátt hefur hann gefið, o.s.frv.
• Hve há sölulaun (bónus) á hver sölumaður að fá miðað við útgefna reikninga eða eingöngu greidda reikninga.


Helstu kostir:

• Hægt að skrá inn ítarlegar upplýsingar um sölumenn
• Hægt að setja upp reglur fyrir sölulaunum
• Hægt að setja upp söluáætlanir á hvern sölumann
• Öflugar sölugreiningar á sölumenn