|
|
|
|
Skuldunautagreining
Það er afar mikilvægt fyrir fyrirtæki að hafa aðgang að ítarlegum upplýsingum um viðskiptavini sína, þarfir þeirra og kauphegðun. Einnig er mikilvægt að fyrirtæki átti sig á því hverjir eru lykilviðskiptavinir þess. Í skuldunautakerfinu er auðvelt fyrir stjórnendur að fylgjast með "stóru myndinni" og fá svör við spurningum eins og hve mikið er útistandandi af viðskiptakröfum, hve mikið er komið á eindaga og hve mikið er væntanlegt og hvenær.
Greina má skuldunauta með tilliti til veltu, afsláttar, framlegðar og ýmsu öðru. Einnig er möguleiki á því að halda annál um stöðu lykilstærða, sjálfkrafa og eins langt aftur í tímann og óskað er. Annála má skoða að vild, t.d. með hjálp grafískra mynda og koma þannig auga á þróun og sveiflur, t.d. í útistandandi viðskiptakröfum.
Í Skuldunautakerfinu er að finna tvenns konar greiningarvinnslur. Annars vegar er svo kallað greiningartré og hins vegar er svo kölluð lykiltölugreining. Þessar greiningarvinnslur hjálpa til við að sjá yfirlit yfir skuldunautakerfið á samandregnu formi.
Skuldunautagreining > Greiningartré sýnir okkur samandregið yfirlit yfir útistandandi viðskiptakröfur.
 veldu mynd til að stækka
Skuldunautar > Lykiltölur sýnir okkur ýmsar lykiltölur hjá skuldunautum, svo sem veltu, veittan afslátt, framlegð og framlegðarprósentu.
 veldu mynd til að stækka
Helstu kostir:
• Notendur eru fljótir að tileinka sér notkun vinnslanna • Hægt er að skoða gögn út frá mörgum mismunandi sjónarhornum • Auðvelt að sjá þróun lykilstærða hjá skuldunautum • Minni þörf fyrir skýrslugerð • Ekki er þörf á langri og erfiðri uppsetningarvinnu með tilheyrandi tilraunum og prófunum
|
|
|