|
Innheimtuþjónusta Innheimtukerfið í dk hentar fyrirtækjum sem selja vöru og/eða þjónustu til annarra fyrirtækja eða einstaklinga. Innheimtukerfið í dk býður upp á marga möguleika í innheimtu, svo sem að útbúa kröfur og senda þær til banka eða milliinnheimtuaðila. Auðvelt er að færa innheimtuna frá einu stigi til annars, frá venjulegum greiðslumáta til milliinnheimtu. Kerfið heldur mjög vel utan um allar útistandandi kröfur. Öll samskipti á milli fyrirtækis og banka eða milliinnheimtufyrirtækis fara rafrænt fram og spara þannig mikla fyrirhöfn og koma í veg fyrir óþarfa pappírsnotkun. Tenging við milliinnheimtu Í dk bjóðast nokkrir möguleikar í samskiptum við milliinnheimtuaðilanna Alskil, Premium, Momentum og Intrum Justicia. Ef kröfur fara í vanskil er möguleiki að senda þær rafrænt til þeirra. Þá eru viðkomandi kröfur felldar niður í bankanum og kröfuskráin sem inniheldur þessar kröfur send til milliinnheimtuaðilans. Milliinnheimtuaðilinn er þá nokkurs konar milliliður og sér frekar um innheimtuna. Þegar greiðslur berast frá milliinnheimtu eru þær lesnar inn í færsludagbók og bókaðar á sama hátt og áður. Einnig er möguleiki að senda kröfuskrána strax þegar hún er búin til í upphafi til milliinnheimtuaðilans og sér hann síðan um að prenta út greiðsluseðlana og senda kröfurnar áfram til banka. Þegar greiðslur berast eru þær lesnar inn í færsludagbók og bókaðar á sama hátt og áður. |




