15.06.10 | Bókunarkerfi
15.06.10 | Besta, með heildarlausn frá dk hugbúnaði ehf
15.03.10 | dk Framtal - einstaklingsframtal
 
Sjá eldri fréttir
   
Leit:


Innheimtukerfi banka

Innheimtukerfið í dk hentar fyrirtækjum sem selja vöru og/eða þjónustu til annarra fyrirtækja eða einstaklinga.

Innheimtuferlið
Innheimtukerfið myndar kröfu út frá hreyfingum í viðskiptamannaskrá eða þegar reikningur er prentaður út. Myndaðar eru kröfuskrár fyrir ákveðið tímabil eða reikning og þær síðan sendar til banka í gegnum bankalínutengingu og þær þannig stofnaðar í bankanum.

Greiðslur
Þegar kröfur hafa verið stofnaðar í bankanum eru greiðsluseðlar prentaðir út og sendir til viðskiptavina. Þannig er einnig hægt að nýta greiðsluseðil sem reikningsform. Um leið og viðskiptavinur greiðir seðilinn í banka finnur tölvukerfi bankans kröfuna og ef komið er fram yfir gjalddaga reiknast sjálfkrafa á hana vextir og vanskilagjald þar sem það á við. Greiðsluskrá er sótt í bankalínu sem lesin er inn í dagbók í dk. Greiðslurnar eru þá sundurliðaðar niður á viðkomandi viðskiptavini og bókhaldslykla (t.d. vaxtareikning og bankareikning). Dagbókin er síðan bókuð.


veldu mynd til að stækka

Upplýsingar
Notandi getur kallað fram upplýsingar um stöðu einstakra krafna myndrænt eða á skýrsluformi. Þannig hefur hann mjög góða yfirsýn yfir allar útistandandi kröfur á einum stað.

Helstu kostir:

• Sér um alla innheimtu frá A-Ö
• Sendir kröfur rafrænt til banka
• Vextir og innheimtukostnaður reiknast sjálfvirkt hjá banka
• Les inn greiðslur rafrænt frá banka
• Veitir kröfueiganda heildaryfirsýn
• Sendir beint til milliinnheimutaðila
• Sölureikninga má prenta á greiðsluseðlar
• Reikningsyfirlit má prenta á greiðsluseðla