Skuldunautar
Í skuldunautakerfinu er haldið utan um skuldunauta fyrirtækisins. Það veitir góða yfirsýn yfir útistandandi skuldir skuldunauta, hvaða viðskipti hafa átt sér stað við þá og hvernig þeir hafi greitt.
Markmiðið með skuldunautakerfinu í dk er að auðvelda þeim sem eiga viðskipti við marga aðila að halda utan um þau.

veldu mynd til að stækka
Grunnur skuldunauta hefur að geyma skuldunauta og dagbækur til að skrá og bóka hreyfingar. Öflugar uppflettivinnslur eru sem auðvelda allar fyrirspurnar- og leitaraðgerðir. Færslur má rekja þangað sem þær enda, í skuldunautakerfið, eða til upprunans í hvaða undirkerfi sem er.
Skuldunautar
Í stofnskrá skuldunauta má skrá margs konar upplýsingar. Hver skuldunautur er auðkenndur með númeri sem getur verið allt að 12 stafa langt, bæði bók- og tölustafir. Almennar upplýsingar fylgja svo sem nafn, heimilisfang, flokkun, merking, samskiptaupplýsingar, afhendingarskilmálar, afhendingarmáti, verðflokkur, sölumaður, tengiliðir, vörumóttakendur, vaxtaskilmálar, jöfnunaraðferð, greiðsluskilmálar, greiðslumáti og innheimtuskilmála.
Öflugar uppflettivinnslur (fyrirspurnir)
Allar uppflettingar og fyrirspurnir eru til fyrirmyndar í skuldunautakerfinu. Haldið er vel utan um allar færslur og hvernig þær urðu til. Almennar uppflettingar eru þannig að skoða má hreyfingar á einstökum skuldunaut.
Mikill fjöldi skýrslna
Í skuldunautakerfinu er að finna aragrúa af skýrslum, bæði stöðluðum og uppsetjanlegum. Í skuldunautum er undirvinnsla sem heitir Skýrslur. Hún inniheldur allar staðlaðar skýrslur sem nauðsynlegt er að ná út úr skuldunautum. Allar skýrslur má fá prentaðar á skjá eða prentara, einnig má prenta út í skrá (Csv, Pdf eða Html format) og senda skýrslur í tölvupóst (sem Pdf skjal eða Html skjal).
Einfalt að halda utan um afslætti
Lítið mál er að halda utan um afsláttarkjör einstakra skuldunauta. Þú skráir einfaldlega umsamin kjör annað hvort beint á skuldunautinn eða flokk skuldunauta. Allar breytingar skila sér fljótt og vel í önnur kerfi og er þannig komið í veg fyrir að gefinn sé of lítill eða of mikill afsláttur.
Afstemmingar
Jafnanir framkvæmast að öllu jöfnu sjálfvirkt þó getur verið undantekning á því og þarf notandi þá að jafna sjálfur saman greiðslum á móti reikningum. Það má gera með því að velja vinnsluna Afstemmingar. Þegar sú vinnsla er valin birtist tafla yfir alla skuldunauta sem sýnir stöðu hvers skuldunauts m.t.t. jöfnunar.
Skuldunautagreining
Í skuldunautakerfinu er að finna tvenns konar greiningarvinnslur. Annars vegar er svo kallað greiningartré og hins vegar er svo kölluð lykiltölugreining. Þessar greiningarvinnslur hjálpa til við að sjá yfirlit yfir skuldunautakerfið á samandregnu formi.
Með greiningartréinu er auðvelt að fylgjast með "stóru myndinni" og fá svör við spurningum eins og hversu mikið af viðskiptakröfum eru útistandandi, hve mikið sé komið á eindaga og hve mikið er væntanlegt og hvenær.
Í lykiltölugreiningunni má greina skuldunauta með tilliti til veltu, afsláttar, framlegðar, greiðslna, verðs, greiðsluskilmála og fleira. Einnig er möguleiki á því að halda annál um stöðu lykilstærða, sjálfkrafa og eins langt aftur í tímann og óskað er. Annála má skoða að vild, t.d. með hjálp grafískra mynda og koma þannig auga á þróun og sveiflur, t.d. í útistandandi viðskiptakröfum, lykiltölur um arðsemi viðskiptavina, lykiltölur um greiðslur frá viðskiptavinum og fleira.
Dráttarvextir
Í skuldunautakerfinu má reikna dráttarvexti hvenær sem er, en venjulega eru dráttarvextir reiknaðir við lok mánaðar. Úreikningurinn reiknar dagvexti á ógreidda (ójafnaða eða óafstemmda) reikninga út frá skilgreindum forsendum. Síðan er hægt að prenta út vaxtanótur og senda þær til viðeigandi skuldunauta.
Reikningsyfirlit
Í skuldunautakerfinu má útbúa reikningsyfirlit hvenær sem er, en venjulega eru reikningsyfirlit útbúin við lok mánaðar. Reikningsyfirlit safnast upp í reikningsyfirlitstöflu. Í henni má skoða einstök reikningsyfirlit prenta þau út og fella niður ef þurfa þykir.
Innheimtukerfi banka
Í skuldunautakerfinu má útbúa innheimtukröfur hvenær sem er, en venjulega eru innheimtukröfur útbúnar fyrir a.m.k. nokkra reikninga í senn eða jafnvel í lok hvers mánaðar. Innborganir má síðan sækja í raun hvenær sem er.
Áskriftakerfi
Í Skuldunautakerfinu er öflugt áskrifakerfi til að halda utan um margvíslegar áskriftir, t.d. bóka- og tímaritaáskriftir, áskriftasamninga og áskrift að þjónustu.
Aðgerðir
Stjórnun viðskiptatengsla verður skilvirkari þegar allar viðskiptaupplýsingar eru geymdar miðlægt í einum gagnagrunni. Sölufólkið getur áætlað og metið aðgerðir og á auðvelt með að greina ný tækifæri því upplýsingarnar eru svo skipulega settar fram og aðgengilegar.
Helstu kostir:
• Mjög ítarleg viðskiptamannaskrá
• Öflugar uppflettivinnslur
• Öflugar bankavinnslur
• Víddir
• Heildaryfirsýn
• Öflug greiningartól
• Lykitölugreining
• Áskriftakerfi
• Aðgerðakerfi