15.06.10 | Bókunarkerfi
15.06.10 | Besta, með heildarlausn frá dk hugbúnaði ehf
15.03.10 | dk Framtal - einstaklingsframtal
 
Sjá eldri fréttir
   
Leit:


Fylgiskjala- og færslusmiður

Í fjárhagskerfinu er öflugt aðstoðarkerfi við dagbókarskráningu, svo kallaður fylgiskjala- og færslusmiður. Hann má nota til að spara tíma, t.d. með því að úthluta föstum upphæðum sem eru bókaðar á ýmsa bókhaldslykla, deildir eða verkefni. Slíkar fastar upphæðir er hægt að ákvarða með magni, prósentu eða gildi.

Notandi getur sett upp grind af fylgiskjali eða dagbók. Þegar hann er síðan að skrá færslur í dagbók getur hann valið sér uppsett fylgiskjal, skráð inn í það viðeigandi upplýsingar, t.d. eingöngu upphæðir og síðan uppfært það inn í dagbókina.

Þetta aðstoðarkerfi er afar hentugt þegar verið er að skrá sömu færslurnar aftur og aftur.

Helstu kostir:

• Setja má upp eins mörg fylgiskjalalíkön eins og þörf er á
• Setja má upp eins mörg dagbókarlíkön eins og þörf er á
• Margvíslegir eiginleikar, svo sem fastar upphæðir og útreiknaðar upphæðir