|
|
|
|
Uppgjör og skjöl
Í öllum kerfiseiningum dk eru að finna öflug greiningartól, hvort sem unnið er með fjárhag, skuldunauta, lánardrottna, sölu, birgðir, verk eða laun. Greiningarvinnslurnar virka frá upphafi og ekki er þörf á langri og erfiðri uppsetningarvinnu með tilheyrandi tilraunum og prófunum. Mjög auðvelt er að fylgjast með "stóru myndinni" og bora (e. Drill Down) sig síðan niður í gögnin niður á einstakar hreyfingar (þangað sem þær enda eða til upprunans).
Fyrir þá notendur sem vilja vinna meira með gögnin er möguleiki að setja upp formúlur í Excel sem lesa gögn úr töflum í dk. Hægt er að nálgast gögn úr svo til öllum aðaltöflum í dk. Þetta þýðir að notandi getur sett upp mjög flókið og viðamikið Excel skjal og lesið inn í það alltaf nýjustu tölur frá dk. Kosturinn við þessa tengingu dk við Excel er að ekki er þörf á því að setja upp eitthvert millistig milli dk og Excel.
Vinnslan Uppgjör og skjöl í fjárhag býður annars vegar upp á að vinna með dk gögn í Excel og hins vegar að vinna með dk gögn í Word. Notandi getur stofnað sér möppur til að geyma Excel og Word skjöl í, þannig getur hann haldið utan um skjöl sem tengjast beint og óbeint dk gögnum fyrirtækisins.
 veldu mynd til að stækka
Helstu kostir:
• Afar auðvelt í notkun • Ekki þörf á flóknu millistigi milli dk og MS Excel • Tengist við flestar aðaltöflur í dk • Minni þörf fyrir skýrslugerð • Hraðvirk, einföld og ódýr viðbót við dk
|
|
|