Fjárhags- og lykiltölugreining
Vaxandi samkeppni og hraði í öllum viðskiptum gerir auknar kröfur til stjórnenda fyrirtækja. Þeir þurfa að hafa góða yfirsýn og vera fljótir til aðgerða ef nauðsyn krefur. Til að geta tekið markvissar ákvarðanir þurfa stjórnendur upplýsingar. Þær þurfa að vera aðgengilegar og auðfengnar og veita stjórnendum nauðsynlega yfirsýn. Stjórnendur vilja í auknum mæli fá upplýsingarnar framsettar á myndrænan hátt og eiga auðvelt með að sjá “stóru myndina”.
Fjárhagsgreining
Í fjárhagskerfinu er auðvelt fyrir stjórnendur að fylgjast með “stóru myndinni” og bora (e: Drill Down) sig síðan niður í gögnin niður á einstakar hreyfingar. Í rekstrarreikningi má greina þróun tekna og gjalda niður á flokka, bókhaldslykla, deildir, verkefni og viðfangsefni. Í efnahagsreikningi má greina þróun liða eins og fastafjármuni, veltufjármuni, eigið fé, langtímaskuldir og skammtímaskuldir. Í sjóðstreymi má greina liði eins og handbært fé til/frá rekstri, fjárfestingahreyfingar og fjármögnunarhreyfingar.
Stjórnendur getur búið sér til margvíslegar greiningar þar sem þeir geta séð hvernig rekstrar- og efnahagsreikningur breytist frá mánuði til mánaðar eða frá ári til árs. Þeir geta einnig skoðað hvernig rauntölur rekstrar- og efnahagsreiknings eru að breytast samanborið við fjárhagsáætlun.
Lykiltölugreining
Í fjárhagskerfinu er möguleiki á því að halda annál um stöðu lykilstærða í rekstrinum, sjálfkrafa og eins langt aftur í tímann og óskað er. Annála má skoða að vild, t.d. með hjálp grafískra mynda og koma þannig auga á þróun og sveiflur, t.d. í hagnaði, hagnaðarhlutfalli, lykiltölum um arðsemi, fjárbindingu í birgðum, fjárbindingu í viðskiptakröfum, útistandandi viðskiptakröfum, veltuhraða fastafjármuna, veltuhraða eigna, lykiltölum um nýtingu fjármagns, lykiltölum um greiðsluhæfi, veltufjárhlutfalli, lausafjárhlutfalli, V/H hlutfalli, Q hlutfalli og fleira.

veldu mynd til að stækka
Helstu kostir:
• Notendur eru fljótir að tileinka sér notkun vinnslanna
• Hægt er að skoða gögn út frá mörgum mismunandi sjónarhornum
• Auðvelt að sjá þróun lykilstærða út frá hinum ýmsu víddum rekstrarins
• Hægt að skoða fyrirtækið í heild eða ákveðnar einingar þess
• Minni þörf fyrir skýrslugerð
• Ekki er þörf á langri og erfiðri uppsetningarvinnu með tilheyrandi tilraunum og prófunum