15.06.10 | Bókunarkerfi
15.06.10 | Besta, með heildarlausn frá dk hugbúnaði ehf
15.03.10 | dk Framtal - einstaklingsframtal
 
Sjá eldri fréttir
   
Leit:


Bankakerfi

Bankakerfið í dk gerir notendum kleift að halda utan um alla bankareikninga – hversu margir sem vera skal í einum eða fleiri bönkum.

Nota má bankakerfið bæði fyrir innlánsreikninga og fyrir lán og reikningarnir geta verið í innlendum eða erlendum gjaldmiðli.

Færslur má lesa beint frá banka inn í kerfið. Hægt er að prenta út yfirlit og afstemma bankareikninga.


veldu mynd til að stækka

Skýrslur
Prenta má út tvær skýrslur, annars vegar banka afstemmingarskýrslu og hins vegar bankayfirlit. Banka afstemmingarskýrslan er hentug til að skoða annars vegar ójafnaðar fjárhagsfærslur og hins vegar ójafnaðar bankafærslur. Skýrslan Banka yfirlit sýnir okkur yfirlit yfir innlesnar bankahreyfingar.


Helstu kostir:

• Afar auðvelt í notkun
• Hægt að prenta út reikningsyfirlit og afstemmingarskýrslu
• Öflug afstemming
• Rafrænn innlestur gagna
• Hægt að bóka færslur
• Hraðvirk, einföld og ódýr viðbót við dk fjárhagskerfið