|
|
|
|
Fjárhagsáætlun
Í dk má setja inn fjárhagsáætlanir og nota síðan við tölfræðilega greiningu. Fyrir hvert bókhaldstímabil má setja inn fjórar mismunandi fjárhagsáætlanir og að auki má velja fyrir hverja áætlun tvö áætlunarstig.
Þegar verið er að setja upp fjárhagsáætlun má í Áætlunarlíkan velja um að setja upp Fjárhagsáætlun 1, Fjárhagsáætlun 2, Fjárhagsáætlun 3 eða Fjárhagsáætlun 4. Undir Áætlunarstig stendur valið á milli þess hvort skrá eigi áætlun á hvern bókhaldslykil eða einungis samtölulykla. Síðan er valið það bókhaldstímabil sem skrá á áætlun á og í Niðurbrot má velja Ár, Hálft ár, Ársfjórðung eða Mánuð.
Í staðinn fyrir að slá inn áætlun frá grunni þá má sækja rauntölur eða eldri fjárhagsáætlun og hækka eða lækka einstaka liði í leiðinni. Síðan má breyta handvirkt fjárhagsáætlun á völdum bókhaldslykli.
Skýrslur Hægt er að prenta út yfirlit yfir áætlanir með samanburði við rauntölur. Möguleiki er á því að prenta út annars vegar hefðbundið yfirlit og hins vegar ítarlegt yfirlit. Ýmsir valkostir bjóðast, svo sem að taka með opnunarsaldó og færslur úr óuppfærðum dagbókum. Á fjölmörgum stöðum í dk má síðan vinna frekar með fjárhagsáætlanir. Í fjárhagsgreiningu má bera rauntölur saman við valda áætlun. Í ársreikningi og sundurliðun hans má fá samanburð á rauntölum við valda áætlun. Í sjóðstreymi má bera rauntölur saman við valda áætlun. Sækja má áætlunartölur inn í Excel skjal til frekari úrvinnslu í vinnslunni Uppgjör og skjöl.
 veldu mynd til að stækka
Helstu kostir:
• Afar auðvelt í notkun • Betri ákvarðanataka • Hraðvirk, einföld og ódýr viðbót við dk
|
|
|