|
|
|
|
Ársreikningur og Sjóðstreymi
Í dk má prenta út ýmsar skýrslur fyrir stjórnendur fyrirtækisins, eins og rekstrarreikning, efnahagsreikning, sundurliðun á rekstrar- og efnahagsreikningi og sjóðstreymi. Möguleiki er að skoða þessar skýrslur með samanburði við önnur bókhaldstímabil nú eða fjárhagsáætlanir. Skýrslurnar má afmarka við deildir, verkefni og viðfangsefni.
Ársreikningur Ársreikning (rekstrar- og efnahagsreikning, ásamt sundurliðunum) má prenta fyrir valið tímabil með samanburði við annað tímabil eða samanburði við áætlanir. Afmarka má við deildir, verkefni (kostnaðarstaði) eða viðfangsefni.
Sjóðstreymi Það er bráðnauðsynlegt að gera sér grein fyrir greiðsluflæði því ekkert fyrirtæki lifir án nauðsynlegs lausafjár. Ekki má setja jafnaðarmerki milli hagnaðar og peninga. Fyrirtæki í vexti skila oft hagnaði en lenda engu að síður í miklum kröggum vegna fjárskorts. Sjóðstreymi nýtist til að koma auga á hugsanlegan peningaskort.
Sjóðstreymi má prenta fyrir valið tímabil með samanburði við annað tímabil eða samanburði við áætlanir.
 veldu mynd til að stækka
Helstu kostir:
• Veitir góðar upplýsingar um afkomu fyrirtækisins og um fjárhagslega stöðu þess • Einföld notkun – ekkert viðhald • Tilbúnar skýrslur • Aukin miðlun upplýsinga • Betri ákvarðanataka
|
|
|