Skuldunautar Farið verður í uppsetningu skuldunautakerfisins, skráningu skuldunauta, uppflettingar og helstu skýrslur. Farið verður í afstemmingu á skuldunautum, útreikning og prentun vaxtanótna ásamt útprentun reikningsyfirlita. Eins verður farið yfir flokkun skuldunauta.
Sölureikningar Farið verður í uppsetningu og útprentun sölureikninga. Uppsetning nótulýsinga verður kynnt og farið yfir helstu möguleika í þeim málum. Uppflettingar og skýrslur verða skoðaðar. Markmiðið er að notandinn geri sér betur grein fyrir samspili kerfisins við önnur kerfi s.s birgðir og skuldunauta.
Birgðir Farið verður í uppsetningu birgðakerfisins, flokkun og innsetningu vara. Einnig er farið yfir birgðaskráningu og talningu. Notendum verður einnig kennt á uppflettingar og skýrslur.
Innheimtukerfi banka Farið er yfir feril þann sem notaður er í innheimtukerfinu, möguleika í afstemningum og innheimtum.