15.06.10 | Bókunarkerfi
15.06.10 | Besta, með heildarlausn frá dk hugbúnaði ehf
15.03.10 | dk Framtal - einstaklingsframtal
 
Sjá eldri fréttir
   
Leit:


 Fjárhagur

Lykillinn að góðum árangri í rekstri er að hafa gott aðgengi að upplýsingum um fjármál fyrirtækisins.

Fjárhagskerfið
er hjartað í dk Viðskiptahugbúnaðinum því er nauðsynlegt að það sé alltaf til staðar, þó aðeins eigi að nota hugbúnaðinn við sölu eða innkaup. Ástæðan fyrir þessu er sú að dk byggist að hluta til á sjálfvirku gagnaflæði milli kerfishluta þar sem allar hreyfingar, hvort sem þær verða til við sölu eða innkaup, berast með skipulögðum hætti í fjárhag.

  
veldu mynd til að stækka 

Grunnur fjárhagsins hefur að geyma bókhaldslykla og dagbækur til að skrá og bóka hreyfingar. Öflugar uppflettivinnslur sem auðvelda allar fyrirspurnar- og leitaraðgerðir. Færslur má rekja þangað sem þær enda, í fjárhag, eða til upprunans í hvaða undirkerfi sem er.

Skráning færslna (fylgiskjala)
Mikilvægur hluti fjárhagsins er innskráning á fylgiskjölum. Við hönnun á fjárhagskerfinu hefur mikil áhersla verið lögð á að gera innskráninguna þægilega og auðvelda. Auðvelt er að lagfæra færslur eða bakfæra í heild sinni.

Öflugt aðstoðarkerfi við dagbókarskráningu, svo kallaður fylgiskjala- og færslusmiður má nota til að spara tíma, t.d. með því að úthluta föstum upphæðum sem eru bókaðar á ýmsa bókhaldslykla, deildir eða verkefni. Slíkar fastar upphæðir er hægt að ákvarða með magni, prósentu eða gildi.

Bókhaldslyklar
Með dk fylgja 15 mismunandi bókhaldslyklasett sem velja má úr þegar nýtt fyrirtæki er stofnað. Bókhaldslyklarnir eru í raun þungamiðja kerfisins. Með þeim er haldið utan um allar fjárhagslegar hreyfingar fyrirtækisins. Þegar nýr bókhalds-lykill er stofnaður má setja upp ýmsar skilgreiningar og tengja hann við staðlaðar fjárstreymisskýrslur.

Öflugar uppflettivinnslur (fyrirspurnir)
Allar uppflettingar og fyrirspurnir eru til fyrirmyndar í dk. Haldið er vel utan um allar færslur og hvernig þær urðu til. Almennar uppflettingar eru þannig að skoða má hreyfingar á t.d. einstökum bókhaldslykli, fylgiskjali, tilvísun, vídd (deild, verkefni eða viðfangsefni) eða saldótölum. Afmarka má við nánast hvað sem er, svo sem dagsetningu, eindaga, tilvísun eða fleira.

Mikill fjöldi skýrslna
Í fjárhagskerfinu er að finna aragrúa af skýrslum, bæði stöðluðum og uppsetjanlegum. Í fjárhag er undirvinnsla sem heitir Skýrslur. Hún inniheldur þær stöðluðu skýrslur sem nauðsynlegt er að ná út úr fjárhag. Allar skýrslur má fá prentaðar á skjá eða prentara, einnig má prenta út í skrá (Csv, Pdf eða Html format) og senda skýrslur í tölvupóst (sem Pdf skjal eða Html skjal).

Virðisaukaskattur
Fjárhagskerfið inniheldur sérstakt virðisaukaskattskerfi sem heldur utan um allan virðisaukaskatt sem bókast í kerfinu. Grunneiningin er virðisaukaskattflokkur. Allur bókaður virðisaukaskattur er þannig tengdur einhverjum virðisauka-skattsflokki.

Fjárhagsáætlun
Fjárhagsáætlun má setja upp fyrir hvert bókhaldstímabil. Setja má upp allt að fjögur áætlunarlíkön fyrir hvert bókhaldstímabil. Síðan má velja um hversu djúpt á að fara í að setja inn fjárhagsáætlun. Velja má áætlunarstig sem stjórnar því hversu djúpt er farið við að skrá inn áætlun. Í áætlunarstig má velja: Samtölulykla eða Bókhaldslykla. Áætlunin er síðan slegin inn á hvern mánuð, ársfjórðung, hálft ár eða ár.

Bankareikningar
Í fjárhag er að finna sérstakt kerfi til að halda utan um bankareikninga, þ.e. alla bókhaldslykla sem tilheyra handbæru fé. Færslur má lesa beint frá banka inn í kerfið. Hægt er að prenta út yfirlit og afstemma bankareikninga.

Ársreikningur, sjóðstreymi og fjárhagsgreining
Ýmsar fjárhagsskýrslur fyrir stjórnendur, eins og ársreikning, sundurliðun ársreiknings og sjóðstreymi má senda á prentara eða á skjáinn. Möguleiki er gefinn á því að skoða þessar skýrslur með samanburði við önnur bókhaldstímabil, eða fjárhagsáætlanir. Einnig er möguleiki á því að halda annál um stöðu lykilstærða í rekstrinum, sjálfkrafa eins langt aftur í tímann og óskað er. Annála má skoða að vild, t.d. með hjálp grafískra mynda og koma þannig auga á þróun og sveiflur, t.d. í lausafjárstöðu, útistandandi viðskiptakröfum, hagnaði, lykiltölum um arðsemi, lykiltölum um nýtingu fjármagns, lykiltölum um greiðsluhæfi og fleira.

Uppgjör og skjöl
Vinnslan uppgjör og skjöl býður annars vegar upp á að vinna með dk gögn í Excel og hins vegar að vinna með dk gögn í Word. Notandi getur stofnað sér möppur til að geyma Excel og Word skjöl í, þannig getur hann haldið utan um skjöl sem tengjast beint eða óbeint dk gögnum fyrirtækisins.

Víddir
Deildir, verkefni og viðfangsefni eru þrjár viðbótar víddir í fjárhagskerfinu og í öllum öðrum kerfishlutum dk. Merkja má allar færslur í kerfinu með deildar-, verkefna- og/eða viðfangsefnatáknum. Þannig má sjá tekjur og gjöld með hliðsjón af deildum, verkefnum og viðfangsefnum.

Tilvísunarkerfi
Tilvísun er nokkurs konar auka vídd í dk, en lýtur þó ekki eins ströngum skilyrðum og hinar hefðbundnu víddir (deild, verkefni og viðfangsefni). Tilvísun má nota til að taka saman ákveðnar færslur á bókhaldslykli eða bókhaldslyklum. Hægt er að fletta upp hreyfingum á einstaka tilvísun og prenta út ýmsar skýrslur. 

Helstu kostir:

• Öflugur fylgiskjala- og færslusmiður (aðstoðarkerfi fyrir dagbókarskráningur)
• Öflugar uppfletti- og fyrirspurnarvinnslur
• Mikill rekjanleiki og leitunarmöguleikar
• Öflugar bankavinnslur
• Tilvísunarkerfi
• Fjárhagsáætlun
• Víddir (deildir, verkefni og viðfangsefni)
• Heildaryfirsýn
• Öflug greiningartól
• Lykitölugreining
• Ársreikningur, sundurliðun ársreiknings og sjóðstreymi