15.06.10 | Bókunarkerfi
15.06.10 | Besta, með heildarlausn frá dk hugbúnaði ehf
15.03.10 | dk Framtal - einstaklingsframtal
 
Sjá eldri fréttir
   
Leit:

 
  afgreiðslukerfi ( dk Pos )

dk Pos afgreiðslukerfið er fyrir verslanir og aðra afgreiðslustaði. Í kassalausninni er auðvelt að setja upp sölufærslur auk þess sem öll umsýsla er einföld og úrvinnslan að mestu sjálfvirk. Vinnsluhraðinn í dk Pos er með því besta sem gerist, viðmótið afar notendavænt og auðlært.

 

Hraði
Mikill afgreiðsluhraði er einn af helstu kostum dk Pos. Öll vörunúmer eru geymd í kassanum sjálfum svo skönnun gengur hratt og vel fyrir sig. Einfaldar aðgerðir tryggja lágmarks afgreiðslutíma svo verslanir geta hæglega fækkað afgreiðslustöðvum sínum.

Útlit að eigin vali
dkPos er afar sveigjanlegt kassakerfi. Hægt er að stilla hnappa eftir óskum, bæta við og eyða eftir þörfum. Nota má lyklaborð, aðgerðalykla og snertiskjá með kassakerfinu. Kerfið býður upp á margs konar virkni og einnig er hægt að bæta við virkni í sérstökum tilfellum ef þörf krefur.

Öryggi og áreiðanleiki
Afrit er tekið af hverri afgreiðslu á öllum kössum um leið og hún er framkvæmd, auk þess sem kassarnir sjálfir geyma upplýsingar aftur í tímann. Sjálfstæði dk Pos tryggir að afgreiðsla stöðvast ekki þrátt fyrir utanaðkomandi röskun.

Öflugt bakvinnslukerfi
Bakvinnslukerfið í dk Pos er heildstætt kerfi og hentar nánast öllum tegundum verslana. Bakvinnslukerfið auðveldar verslunarstjórum umsjón með lager og innkaupum auk þess sem auðvelt er að halda utan um verðbreytingar og afslætti. Leikur einn að halda utan um afgreiðslukassana frá bakvinnslukerfinu hvort sem þörf er á að stofna nýjan afgreiðslumann, framkvæma kassauppgjör eða fletta sögu.

Sölugreining
Sölugreining er mikilvægur þáttur í rekstri verslana. Notendur dk Pos geta fengið skýrslur um sölu á vörum, vöruflokkum, kössum og afgreiðslumönnum. Einnig fylgja með ítarlegar skýrslur um tilboð, birgðir og uppgjör.

Handtölvur
Auðvelt er að nota handtölvur með dk Pos afgreiðslukerfinu. Með því að nota handtölvu við vörutalningar, pantanagerð og vörumóttöku má lækka kostnað og spara tíma.

Framtíðarlausn
dk Pos afgreiðslukerfið er framtíðarlausn sem byggir á nýjustu tækni og getur vaxið í takt við aukin umsvif í rekstri. Kerfið er hannað hvort sem er fyrir stakar verslanir með einn, tvo eða þrjá afgreiðslukassa eða fyrir fyrirtæki þar sem notendafjöldi og fjöldi verslana er nánast ótakmarkaður.


Helstu kostir:

• Íslenskt kerfi, frábær hönnun
• Einföld uppsetning
• Einfalt uppgjör í lok dags
• Innbyggður POSA hugbúnaður
• Styður mjög vel notkun snertiskjáa. Hægt að tengja við kerfið snertiskjá, peningaskúffu, kúnnaskjá, kortalesara, strikamerkjalesara, handtölvur og strimlaprentara
• Miðlægt gjafakortakerfi
• Öflugt eftirlitskerfi
• Heimalán, frátektir og biðsölur
• Margvíslegir afsláttarmöguleikar

 

Hægt er að leita upplýsinga um dk Pos afgreiðslukerfið á dk@dk.is eða í síma 510-5800.

Við tökum vel á móti ykkur,

Starfsfólk dk hugbúnaðar ehf