15.06.10 | Bókunarkerfi
15.06.10 | Besta, með heildarlausn frá dk hugbúnaði ehf
15.03.10 | dk Framtal - einstaklingsframtal
 
Sjá eldri fréttir
   
Leit:


 Launakerfi

Launakerfið, sem er að öllu leyti samtengt öðrum kerfishlutum í dk viðskipta-hugbúnaðinum, er notað til að halda utan um launagreiðslur fyrirtækisins. Það veitir góða yfirsýn yfir allar launagreiðslur. Er bæði fljótlegt og þægilegt til að halda utanum laun starfsmanna. Launakerfið býður upp á mjög fullkomna og þægilega deilda-, verkefna- og viðfangsefnaskiptingu, þar sem fylgst er ítarlega með launakostnaði í hverri deild og/eða verkefni og/eða viðfangsefni.

Launþegi getur t.d. verið að vinna í mörgum deildum á sama launatímabili og er launakostnaður vegna vinnu launþegans sundurliðaður á þær deildir, verkefni og viðfangsefni sem hann vann við. Þetta á einnig við um öll launatengd gjöld, svo sem mótframlag í lífeyrissjóð, tryggingagjald o.fl.


veldu mynd til að stækka

Grunnur launakerfisins hefur að geyma launþega og vinnslur til að skrá tíma og upphæðir. Öflugar uppflettivinnslur eru sem auðvelda allar fyrirspurnar- og leitaraðgerðir. Færslur má rekja þangað sem þær enda, í launakerfið, eða til upprunans í hvaða undirkerfi sem er.


Helstu kostir:

• Mjög ítarleg launþegaskrá
• Öflugar uppflettivinnslur
• Víddir
• Rafræn sending á gögnum (launaseðlar og skilagreinar)
• Greiðsluskrár til banka
• Öflug greiningartól
• Stimpilklukka
• Tenging við verk- og fjárhagskerfið