|
|
|
|
Framtal
dk Framtalskerfið er hannað með því markmiði að auðvelda alla framtalsgerð, helst hugsað fyrir uppgjörsaðila, endurskoðunar- & bókhaldsstofur. Mikil og góð reynsla er nú þegar komin á kerfið sem sett var fyrst á markað árið 2000 og hefur notendum stöðugt farið fjölgandi.
Helstu kostir dk Framtalskerfis Öll gögn eru geymd í gagnagrunni undir nafni og kennitölu hvers framteljanda. Þetta hefur í för með sér að notandi hefur á einum stað skrá yfir alla einstaklinga, alla einstaklinga með rekstur, alla aðila sem skila inn landbúnaðarframtali og alla lögaðila sem skila rekstrarframtalinu RSK 1.04. Með kerfinu fylgja góðar grunntöflur, til dæmis yfir öll sveitarfélög, útsvarsprósentu hvers sveitarfélags, skattstofur ofl. Kerfið skilar öllum skatteyðublöðum á viðurkenndu formi til skattyfirvalda. Öflugt fyrningarkerfi er til staðar. Haldin er skrá yfir fastafjármuni og fyrningar reiknaðar. Öflugt framtalskerfi fyrir lögaðila sem skila inn RSK 1.04. Kerfið heldur utan um hvert ár og ekki þarf að stofna lögaðilann á hverju ári. dk Framtal heldur utan um og prentar út svo sem launamiða(RSK.2.01) greiðslumiða (RSK 2.02), hlutafjármiða (RSK 2.045) og fleiri. Landbúnaðarframtal fylgir.
Hér fyrir neðan má sjá talningu fyrir rafræn framtalsskil dk hugbúnaðar. 
|
|
|