|
|
|
|
Virðisaukauppgjör
dk viðskiptahugbúnaður inniheldur sérstakt virðisaukakerfi sem heldur utan um allan þann virðisauka sem bókast í hugbúnaðinum. Með honum fylgja nokkur uppsett fyrirtækjaform, eins og hefur komið fram um kerfi hugbúnaðarins. Þessi fyrirtækjaform innihalda uppsett virðisaukaskattskerfi, tilbúin til notkunar.
Virðisaukaskýrsluna má prenta út á prentara einnig á skjá eins oft og þurfa þykir, en nauðsynlegt er að prenta hana út a.m.k. eftir hvert virðisaukatímabil. Allar vinnslur og uppflettingar eru til fyrirmyndar, hægt er að fletta upp hreyfingum einstakra virðisaukaskattsflokka og skoða hvort ekki sé í lagi með allar virðisaukaskattfærslur.
Við bendum á að nota handbækurnar til að kynna sér efnið nánar.
|
|
|