15.06.10 | Bókunarkerfi
15.06.10 | Besta, með heildarlausn frá dk hugbúnaði ehf
15.03.10 | dk Framtal - einstaklingsframtal
 
Sjá eldri fréttir
   
Leit:


EDI
(SMT)

EDI er skammstöfun á "Electronic Data Interchange" sem merkir sendingar á milli tölva (SMT) á rafrænan hátt. Tölvan sendir EDI-skeyti sem hún hefur túlkað af eigin vélarmáli yfir í aðra tölvu sem þýðir textann aftur yfir á vélamál móttakanda. Þessi rafrænu samskipti draga úr þörf fyrir pappírsviðskipti, minnka vinnu við skráningu gagna og spara ferðir. Tollstjóraembættið, innflytjendur (lánardrottnar) og verslanir nota þennan samskiptamáta sér og viðskiptavinum sínum til hagræðingar.

Ýmis fyrirtæki á sviði verslunar og þjónustu nota þessar rafrænu sendingar til að taka á móti sölupöntunum, senda sölureikninga til viðskiptavina, senda innkaupa-pantanir og fá vörureikninga frá lánardrottnum (birgjum) sínum. Einnig er hægt að senda og taka á móti vöru- og verðlistum um EDI.


veldu mynd til að stækka

Gagnadagbók
Einn aðalkosturinn við EDI vinnslurnar í dk viðskiptahugbúnaðinum er gagna-dagbókin sem heldur utan um öll móttekin og send skeyti og sýnir stöðu skeytis á hverjum tíma.

Hraðvirkur gagnaflutningur
Með EDI eru gögn mun fljótari að berast á milli fyrirtækja og þannig er komið í veg fyrir að fylgiskjöl fari á flakk. Þegar vörureikningur frá birgja (lánardrottni) hefur borist um EDI á bara eftir að skoða hann og bóka með einum músarsmelli. EDI kemur einnig í veg fyrir tvíbókun á skjölum. Allar aðgerðir er auðvelt að skilja og framkvæma þannig að samskipti á milli fyrirtækja og stofnana verða fljótvirk og greið.


Helstu kostir:

• Afar einfalt í notkun
• Tryggir öryggi samskipta
• Sýnir ávallt stöðu sendinga
• Ítarleg villuleit
• Hraðvirk, einföld og ódýr viðbót við dk viðskiptahugbúnaðinn