|
|
|
|
Birgðir
Birgðakerfið heldur utan um lager og geymir birgðasögu fyrirtækisins. Það er nauðsynlegt tæki til að stýra birgðum og halda birgðakostnaði í lágmarki. Framlegðargreining eftir vörutegundum og flokkum ásamt ABC – greiningu er undirstaða þekkingar á rekstri fyrirtækisins.
 veldu mynd til að stækka
Grunnur birgðakerfisins hefur að geyma vörur og vinnslur til að skrá birgðir inn og út af lager. Öflugar uppflettivinnslur eru sem auðvelda allar fyrirspurna- og leitaraðgerðir.
Vörur Í stofnskrá vara má skrá margs konar upplýsingar. Hver vara er auðkennd með númeri sem getur verið allt að 20 stafa langt, bæði bók- og tölustafir.
Birgðabreytingar Hér fer fram leiðrétting á birgðum bæði inn á lager og út af lager. Hér á einnig sér stað talning á lager og millifærsla á vöru úr einni birgðageymslu yfir í aðra.
Öflugar uppflettivinnslur (fyrirspurnir) Allar uppflettingar og fyrirspurnir eru til fyrirmyndar í birgðakerfinu. Haldið er vel utan um allar færslur og hvernig þær urðu til. Almennar uppflettingar eru þannig að skoða má hreyfingar á einstökum vörum og vöruflokkum.
Mikill fjöldi skýrslna Í birgðakerfinu er að finna aragrúa af skýrslum, bæði stöðluðum og uppsetjanlegum. Í birgðakerfinu er undirvinnsla sem heitir Skýrslur. Hún inniheldur allar staðlaðar skýrslur sem nauðsynlegt er að ná út úr birgðum. Allar skýrslur má fá prentaðar á skjá eða prentara, einnig má prenta út í skrá (Csv, Pdf eða Html format) og senda skýrslur í tölvupóst (sem Pdf skjal eða Html skjal).
Verðbreytingar Í birgðakerfinu er að finna margar vinnslur ætlaðar fyrir verðbreytingar. Hægt er að afmarka vinnslurnar við ákveðinn vöruflokk eða vörunúmer.
Birgðagreining Í birgðakerfinu er að finna greiningarvinnslur. Hér er um svo kallað greiningartré að ræða. Þessar greiningarvinnslur hjálpa til við að sjá yfirlit yfir birgðakerfið á samandregnu formi. Sem dæmi þá má fá ABC greiningu á vörurnar.
Uppskriftir Skrá má uppskriftir að framleiðsluvöru með vörunúmerum úr birgðakerfinu. Að skráningu lokinni er hægt að framleiða vöru sem sjálfkrafa færir íhluti af birgðum vörunúmera inn á birgðir framleiðsluvara.
Afsláttarvinnslur Í birgðakerfinu er boðið upp á fjölbreytt úrval af afsláttarmöguleikum. Í boði eru fastur krónutöluafsláttur, prósentuafsláttur og magnafsláttur og samsetning af fyrrgreindu.
Strikamerkjavinnslur Í birgðakerfinu er boðið upp á úthlutun á strikamerkjum og tengja strikamerki við vörunúmer. Prenta má út strikamerkjamiða, bæði hillumiða og mismunandi stærðir af verðmiðum.
Helstu kostir:
• Mjög ítarleg vöruskrá • Öflugar uppflettivinnslur • Víddir • Öflugar afsláttarvinnslur og samningsbundin verð • Margar birgðageymslur • Heildaryfirsýn • Öflug greiningartól • Uppskriftir • Heldur utan um strikamerki • Heldur utan um serialnúmer • Heldur utan um lotunúmer • Heldur utan um vöruafbrigði (litir og stærðir)
|
|
|