Verkgreining
Virkt eftirlit með verkbókhaldi er lykilþáttur í rekstri fyrirtækja sem selja út ráðgjafa-, þjónustu, og viðhaldsvinnu. Í verkkerfinu er auðvelt fyrir stjórnendur að fylgjast með “stóru myndinni” og fá svör við spurningum eins og hvernig er tímum starfsmanna ráðstafað? Hvernig er skráningu háttað á einstök verk, undirverk og verktegundir? Hver er fjöldi útskuldaðra tíma og hvert er verðmæti þeirra?
Greining á verðmætasköpun í verkkerfinu út frá starfsmönnum, verktegundum, verkum, undirverkum og verkþáttum er afar auðvelt. Einnig er möguleiki á því að halda annál um stöðu lykilstærða, sjálfkrafa og eins langt aftur í tímann og óskað er. Annála má skoða að vild, t.d. með hjálp grafískra mynda og koma þannig auga á þróun og sveiflur, t.d. í útseldum tímum starfsmanna, lykiltölum um greidda tíma, lykiltölum um framlegð og fleira.
Boðið er upp á nokkrar tegundir greiningatrjáa. Um er að ræða niðurbrot á einstök verk, á einstaka verkþætti og á einstaka starfsmenn.
Greiningartré starfsmanna
Ef við skoðum nú Verkgreiningu og veljum Greiningartré starfsmanna þá kemur upp valgluggi þar sem hægt er að tiltaka tímabil og velja tegund verka og stöðu.

veldu mynd til að stækka
Þegar búið er að skrá inn viðeigandi valmöguleika þá er smellt á hnappinn [F12 Staðfesta ] og birtist þá eftirfarandi mynd.

veldu mynd til að stækka
Með því að smella á plús táknið fyrir framan einstaka liði má opna niður á neðra þrep. Ef t.d. smellt er á plús táknið fyrir framan starfsmann þá sjást allir tegundarflokkar verka (Reikningsverk, Þjónustuverk, Tilboðsverk og Innanhússverk). Ef smellt er síðan á plús táknið fyrir framan t.d. Reikningsverk, þá sjást öll verk sem hafa verið reikningsfærð. Fyrir hvert verk má skoða heildar vinnu [klst] og akstur sem starfsmaðurinn hefur skráð á það. Einnig má skoða heildar kostnað, samtals reikningsfærða vinnu, heildar tekjur, Framlegð og áætlaða vinnu og vinnu til ráðstöfunar.
Með því að smella á hnappinn [F5 Valmynd] má velja að sjá hreyfingar á bak við valið verk.
Þessa starfsmannagreiningu má einnig senda yfir í Excel til frekari úrvinnslu með því að smella á hnappinn [F5 Valmynd] og velja Senda yfir í Excel.
Starfsmannagreininguna má prenta út með því að smella á hnappinn [F7 Prenta].
Greiningartré verka
Ef við skoðum nú Verkgreiningu og veljum Greiningartré verka þá kemur upp valgluggi þar sem hægt er að tiltaka tímabil og velja tegund verka og stöðu.

veldu mynd til að stækka
Eins og sést á valmyndinni þá má velja um að fá verkgreininguna niðurbrotna á starfsmenn eða verkþætti.
Þegar búið er að skrá inn viðeigandi valmöguleika þá er smellt á hnappinn [F12 Staðfesta ] og birtist þá eftirfarandi mynd.

veldu mynd til að stækka
Þessa verkgreiningu má einnig senda yfir í Excel til frekari úrvinnslu með því að smella á hnappinn [F5 Valmynd] og velja Senda yfir í Excel.
Verkgreininguna má prenta út með því að smella á hnappinn [F7 Prenta].
Greiningartré verkþátta
Ef við skoðum nú Verkgreiningu og veljum Greiningartré verkþátta þá kemur upp valgluggi þar sem hægt er að tiltaka tímabil og velja tegund verka og stöðu.

veldu mynd til að stækka
Eins og sést á valmyndinni þá má velja um að fá verkgreininguna niðurbrotna á verk/starfsmenn eða starfsmenn/verk.
Þegar búið er að skrá inn viðeigandi valmöguleika þá er smellt á hnappinn [F12 Staðfesta ] og birtist þá greiningamynd.
Þessa verkþáttagreiningu má einnig senda yfir í Excel til frekari úrvinnslu með því að smella á hnappinn [F5 Valmynd] og velja Senda yfir í Excel.
Verkþáttagreininguna má prenta út með því að smella á hnappinn [F7 Prenta]
Helstu kostir:
• Notendur eru fljótir að tileinka sér notkun vinnslanna
• Hægt er að skoða gögn út frá mörgum mismunandi sjónarhornum
• Auðvelt að sjá þróun lykilstærða hjá starfsmönnum, verkum og verkþáttum
• Minni þörf fyrir skýrslugerð
• Ekki er þörf á langri og erfiðri uppsetningarvinnu með tilheyrandi tilraunum og prófunum