15.06.10 | Bókunarkerfi
15.06.10 | Besta, með heildarlausn frá dk hugbúnaði ehf
15.03.10 | dk Framtal - einstaklingsframtal
 
Sjá eldri fréttir
   
Leit:


 Sölureikningar

Sölukerfið er öflugt stjórntæki við alla sölumennsku. Það uppfyllir allar helstu kröfur sem gerðar eru til slíks kerfis í dag varðandi skráningu á grunn-upplýsingum, aðgengi upplýsinga og prentun á ýmsum seðlum, svo sem sölureikningi, sölupöntun, sölutilboði, afhendingarseðli, vörumiðum og tiltektarseðli.


veldu mynd til að stækka

Grunnur sölukerfisins hefur að geyma sölureikninga, sölupantanir, sölutilboð, sölumenn og tengingar við önnur kerfi. Öflugar uppflettivinnslur eru sem auðvelda allar fyrirspurna- og leitaraðgerðir.

Sölureikningar
Í sölukerfinu er hægt að útbúa venjulega sölureikninga, staðgreiðslureikninga eða kreditreikninga. Hægt er að aðlaga útlit reikninga, þannig að texti falli vel að forprentuðum reikningseyðublöðum í einriti eða margriti. Hægt er að prenta út reikning, ásamt ýmsum fylgiseðlum. Reikninga má senda rafrænt (EDI) til viðskiptavina. Þegar reikningur prentast út bókast hann í fjárhags-, skuldunauta- og birgðakerfið.

Sölupantanir
Í sölukerfinu má taka á móti sölupöntunum frá viðskiptavinum og taka frá vörur í birgðakerfinu. Hægt er að prenta út pöntunarstaðfestingu, ásamt ýmsum fylgiseðlum. Sölupöntun má síðan breyta í reikning og prenta út. Hægt er að fylgjast með stöðu sölupantana og prenta út ýmsar skýrslur yfir sölupantanir, bæði yfirlits- og stöðuskýrslur. Sölupantanir má taka á móti rafrænt (EDI).

Sölutilboð
Í sölukerfinu er hægt að útbúa sölutilboð til viðskiptavina. Hægt er að prenta út sölutilboð, ásamt ýmsum fylgiseðlum. Sölutilboð má síðan breyta í sölupöntun eða sölureikning. Hægt er að fylgjast með stöðu sölutilboða og prenta út ýmsar skýrslur yfir sölutilboð, bæði yfirlits- og stöðuskýrslur.

Áskriftapantanir
Í sölukerfinu er hægt að setja upp áskriftapantanir frá viðskiptavinum. Hægt er að prenta út skýrslu yfir áskriftapantanir og flokka þær í ýmsa flokka. Áskriftapantanir má síðan flytja yfir á reikninga.

Öflugar uppflettivinnslur (fyrirspurnir)
Allar uppflettingar og fyrirspurnir eru til fyrirmyndar í sölukerfinu. Haldið er vel utan um allar færslur og hvernig þær urðu til. Almennar uppflettingar eru þannig að skoða má söluhreyfingar á ákveðnu tímabili.

Mikill fjöldi skýrslna
Í sölukerfinu er að finna aragrúa af skýrslum, bæði stöðluðum og uppsetjanlegum. Í sölukerfinu er undirvinnsla sem heitir Skýrslur. Hún inniheldur allar staðlaðar skýrslur sem nauðsynlegt er að ná út úr sölu. Allar skýrslur má fá prentaðar á skjá eða prentara, einnig má prenta út í skrá (Csv, Pdf eða Html format) og senda skýrslur í tölvupóst (sem Pdf skjal eða Html skjal).

Sölumenn
Ef nokkrir sölumenn vinna í viðkomandi fyrirtæki er hægt að stofna þá og úthluta hverjum þeirra númeri (kóða) og sölulaunaprósentu. Síðan má útbúa ýmsar skýrslur og greiningar og halda utan um greiðslu sölulauna.

Sölugreining
Í sölukerfinu er að finna greiningarvinnslur. Hér er um svo kallað greiningartré að ræða. Með sölugreiningu gefst tækifæri á að greina sölu og framlegð fyrirtækisins niður á einstaka vörur og vöruflokka, viðskiptamenn, sölumenn og tímabil. Hægt er að fylgjast með því hvernig salan er að þróast dag frá degi og fá þannig strax upplýsingar um hvort sölumarkmið séu að nást. Þannig nýtist sölugreiningin sem mikilvægt stjórntæki sem gerir mögulegt að grípa til aðgerða áður en það er um seinan. Þá nýtist sölugreiningin einnig til að meta arðsemi einstakra vara og vöruflokka, einstakra viðskiptamanna og fleira.

Söluáætlun
Söluáætlanakerfið í dk gerir notendum kleift að búa til margar söluáætlanir. Áætla má á söluupphæð, sölumagn og framlegð sölu. Hægt er að stofna 5 gerðir af söluáætlunum og getur síðan hver gerð innihaldið margar uppsetningar með mismunandi niðurbroti. Áætlanir má síðan skoða og bera saman við rauntölur.

Verslunareining
Verslunareiningin er viðbót við sölukerfið. Hún býður upp á að taka á móti greiðslu samhliða sölu, þ.m.t. debet- og kreditkort. Hægt er að framkvæma kassauppgjör og prenta út greiðsluyfirlit.

Afgreiðslukerfi / kassakerfi (dkPOS)
Afgreiðslukerfið í dk er fyrir sérvöruverslanir og aðra afgreiðslustaði þar sem þörf er á mismunandi notendaskilum. dkPOS afgreiðslukassinn er mikilvægur hluti afgreiðslukerfisins. Í kassalausninni er auðvelt að setja upp sölufærslur, öll umsýsla er einföld og úrvinnslan að mestu sjálfvirk. Í dkPOS er vinnsluhraði með því besta sem gerist, viðmótið afar notendavænt og auðlært.

Helstu kostir:

• Öflugt sölupantana- og sölutilboðskerfi
• Áskriftapantanir
• Öflugar uppflettivinnslur
• Víddir
• Rafræn sending og móttaka á gögnum (reikningar og sölupantanir)
• Öflug greiningartól
• Söluáætlanir
• Sölumannakerfi
• Verslunareining
• Afgreiðslukerfi / kassakerfi (dkPOS)