|
|
|
|
Söluáætlanir
Söluáætlanakerfið í dk gerir notendum kleift að búa til margar söluáætlanir. Áætla má á söluupphæð, sölumagn og framlegð sölu. Hægt er að stofna 5 gerðir af söluáætlunum og getur síðan hver gerð innihaldið margar uppsetningar með mismunandi niðurbroti. Áætlanir má síðan skoða og bera saman við rauntölur.
Stofna má mörg áætlunarlíkön. Stofna má áætlun á sölumenn og áætla á upphæð, magn og framlegð. Áætlunina má síðan brjóta niður á skuldunauta, hóp af skuldunautum, vörunúmer eða hóp af vörunúmerum. Stofna má áætlun á skuldunauta og áætlað á upphæð, magn og framlegð. Áætlunina má síðan brjóta niður á sölumenn, hóp af sölumönnum, vörunúmer eða hóp af vörunúmerum.
 veldu mynd til að stækka
Sölugreining söluáætlana Söluáætlanir má skoða á margvíslan hátt. Skoða má hvernig sölumenn eru að standa sig samanborið við áætlun á söluupphæð.
 veldu mynd til að stækka
|
|
|