15.06.10 | Bókunarkerfi
15.06.10 | Besta, með heildarlausn frá dk hugbúnaði ehf
15.03.10 | dk Framtal - einstaklingsframtal
 
Sjá eldri fréttir
   
Leit:


Beiðnakerfi

Flestir sem komið hafa að rekstri fyrirtækja þekkja vandræðin þegar enginn veit hvar reikningur er staddur í fyrirtækinu, hver hafi skrifað upp á hann, hvort hann sé greiddur, tvígreiddur eða rangfærður. Samþykktarkerfið minnkar hættuna á slíkum vandamálum með því að halda utan um alla reikninga sem koma inn og gerir viðkomandi aðilum kleift að rekja stöðu þeirra á hverjum tíma.

Til viðbótar við hefðbundna bókun á innkomnum reikningum er einnig möguleiki á að skrá inn og prenta út beiðni fyrir vöru eða þjónustu. Beiðninni má síðan breyta í reikning þegar reikningurinn kemur.

Beiðni skráð inn
Þegar starfsmaður eða verktaki kemur og óskar eftir að fá að kaupa vöru(r) eða þjónustu (aðkeypta þjónustu) er stofnuð beiðni í dk og hún prentuð út. Þegar reikningurinn fyrir viðkomandi vöru(m) kemur þá er beiðninni breytt í reikning. 

 
veldu mynd til að stækka

Aðgengilegar upplýsingar
Þegar upphafsskráningu er lokið má strax sjá upplýsingar í upplýsingatré viðkomandi lánardrottins. Í upplýsingatrénu má því alltaf sjá þær upphæðir sem liggja í beiðnum. Upphæðir sem liggja í beiðnum má skoða í greiningum hvort sem er í lánardrottnakerfinu eða fjárhagskerfinu.

Beiðni breytt í reikning
Þegar reikningur kemur má bera hann saman við viðkomandi beiðni og breyta síðan beiðninni í reikning. Reikningurinn fer síðan sína leið í kerfinu, sem dæmi þá gæti hann verið sendur áfram til samþykktar í fyrirtækinu eftir því sem vinnureglur gera ráð fyrir.


Helstu kostir:

• Einföld og hraðvirk skráning beiðna
• Gefur betri yfirsýn yfir væntanlegan kostnað og óinnkomna reikninga