15.06.10 | Bókunarkerfi
15.06.10 | Besta, með heildarlausn frá dk hugbúnaði ehf
15.03.10 | dk Framtal - einstaklingsframtal
 
Sjá eldri fréttir
   
Leit:


Lánardrottnagreining

Í lánardrottnakerfinu er að finna eina greiningarvinnslu. Þessi greiningarvinnsla er svo kallað greiningartré. Þessi greiningarvinnsla hjálpar til við að sjá yfirlit yfir lánardrottnakerfið á samandregnu formi. Lánardrottnagreining> Greiningartré sýnir okkur samandregið yfirlit yfir reikninga til greiðslu.


veldu mynd til að stækka

Lánardrottnagreining sýnir yfirlit yfir stöðu lánardrottna og hvernig úttektir okkar dreifast á hvert tímabil. Við sjáum einnig greiðsluáætlun sem sýnir yfirlit yfir þær greiðslur sem við þurfum að inna af hendi. Með því að smella á plús táknið fyrir framan einstaka liði má opna niður á neðra þrep. Ef t.d. smellt er á plús táknið fyrir framan Ógjaldfallið þá sjást allir þeir lánardrottnar sem eiga hjá okkur ógjaldfallna reikninga (reikninga sem ekki eru komnir á eindaga). Ef smellt er á plús táknið fyrir framan Greiðsluáætlun þá sést m.a. hvernig greiðslur dreifast næstu vikurnar.

Með því að smella á hnappinn [Valkostir] má velja um að sjá allar hreyfingar ársins hjá völdum lánardrottni eða sjá upphæðir á myndrænu formi, þ.e. sjá dálkana á súluritaformi.

Greiningartréð má prenta út með því að smella á hnappinn [F7 Prenta].
Greiningartréð má senda yfir í Excel til frekari úrvinnslu með því að smella á hnappinn [Valkostir] og velja Senda yfir í Excel.


Helstu kostir:

• Notendur eru fljótir að tileinka sér notkun vinnslanna
• Hægt er að skoða gögn út frá mörgum mismunandi sjónarhornum
• Auðvelt að sjá þróun lykilstærða fyrir hvern lánardrottinn
• Minni þörf fyrir skýrslugerð
• Ekki er þörf á langri og erfiðri uppsetningarvinnu með tilheyrandi tilraunum og prófunum